

Jón Gunnarsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmemm Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherrar, eru ánægð með áform ríkisstjórnarinnar um brottfararbúðir. Annarri umræðu um frumvarpið lauk á Alþingi nú í morgun og nú aftur til meðferðar allsherjar- og menntamálanefndar. Ekki eru allir á par sáttir við áformin og voru meðal annars hávær mótmæli á þingfundi í gær.
„Nú er sá áfangi að komast í höfn að samþykkt verður að hafa brottfararbúðir fyrir þá sem hafa fengið höfnun á dvalarleyfi og neyta að fara að lögum og hverfa úr landi. Sinnaskipti Samfylkingar og Viðreisnar í þessum málum eru ánægjuleg. Við Sjálfstæðismenn styðjum þessar breytingar,“ skrifar Jón á Facebook.
Jón rifjar upp sína tíð sem dómsmálaráðherra, þá sérstaklega þegar listamaðurinn Þrándur Þórarinsson málaði verk af Jóni í nasistabúningi þegar til stóð að vísa tæplega 300 hælisleitendum aftur til Grikklands.
„Þegar ég setti fram hugmyndir um brottfararbúðir og móttökubúðir á sínum tíma töluðu þingmenn þessara flokka, þ.á.m. ráðherrar núverandi ríkisstjórnar gegn þeim hugmyndum okkar. Lögðust á sveif með VG og gerðu okkur mjög erfitt með að koma málum áfram,“ skrifar Jón og birtir málverkið sjálft.
„Svona skopmyndir voru birtar af mér í einhverjum fjölmiðlum á þeim tíma. Nú er öldin önnur enda Þýska stálið komið um borð. Nú hafa þau skipt um skoðun og virðast fara létt með það. Ég spái því að ekki líði á mjög löngu þar til þau verða komin á þann stað að kannst ekkert við að hafa viljað draga þjóðina inn í Evrópusambandið. Batnandi fólki er best að lifa.“
Áslaug Arna segir úrræðið nauðsynlegan hluta af skilvirku útlendingaeftirliti gagnvart þeim sem ekki sýna samstarfsvilja við brottvísun. „Talsverð sátt var um að málið þyrfti að ná fram að ganga í þinginu þó minniháttar álitamál hafi verið uppi um hversu langt skildi ganga,“ skrifar hún á Facebook.
„Það er af sem áður var. Fyrir sex árum ræddi ég nauðsyn þessarar lagasetningar í þinginu, við vægast sagt litlar undirtektir núverandi ráðamanna. Á sama tíma tók ég við nýjum landamærabíl lögreglunnar og var sökuð um ógeðfellda háttsemi með því að láta mynda mig með lögreglunni að þessu tilefni. Í síðustu viku brostu stjórnarþingmenn og ráðherra sínu breiðasta með sama bíl. Á þessum tíma var líka frumvarp komið inn í þingið sem felldi niður séríslenskar reglur í útlendingalögunum, frumvarp sem þurfti fram að koma ár eftir ár áður en það var að lokum samþykkt. Á þessum tíma voru ítrekað fluttar fréttir af brottvísunum, þekktur poppari gaf út lagið „Áslaug Arna“ þar sem fólk er hvatt til að vera ekki ég þar sem ég „henti óléttum konum úr landi“. „Áslaug Arna martröð barna“ var ritað á veggi um miðbæinn og tekið upp í þættinum hjá Gísla Marteini. Þá var þessi mynd máluð af mér með fálka á öxlinni í nasistabúning.“
Hún segir þessa upprifjun ekki til að kveinka sér undan umræðunni.
„ Heldur það að setja hlutina í ákveðið sögulegt samhengi. Á þessum tíma áttuðu fæstir sig á þeim áhrifum og kostnaði sem þessi málaflokkur ætti eftir að hafa í för með sér og þeim mun auðveldara að sveiflast með fjöldanum og telja að mannúð fylgdi veikri umgjörð. Þetta er áminning um hvað samfélagsumræðan getur breyst hratt og hvað við eigum oft erfitt með að muna hvernig hún var. Þetta er líka áminning um að stjórnmálamenn þurfa að geta tekið ákvarðanir byggðar á gögnum og eigin sannfæringu en ekki aðeins eftir skoðun fjöldans. Til lengri tíma gerir fólk nefnilega þær kröfur til ráðamanna, þó það láti kannski nú ekki mikið í sér heyra rétt á meðan baráttan stendur yfir.“