fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Eyjan

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Eyjan
Miðvikudaginn 3. júní 2026 09:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjármálakerfið á Íslandi er traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum, húsnæðisverð hefur lækkað að raunvirði og áhætta í rekstri fjármálainnviða hefur aukist. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

„Fjármálakerfið hér á landi er traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt. Viðvarandi óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins á komandi misserum. Skuldahlutföll heimila og fyrirtækja eru almennt lág og vanskil lítil. Álagspróf Seðlabanka Íslands bendir til þess að stóru bankarnir þrír geti staðið af sér verulegt áfall án þess að skerða um of framboð lánsfjár til viðskiptavina.

Húsnæðisverð hefur lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu hefur fjölgað og lengur tekur að selja eignir, sérstaklega nýjar íbúðir. Skuldir fyrirtækja í byggingastarfsemi hafa vaxið síðustu misseri og merki eru um vaxandi vanskil þótt þau séu enn tiltölulega lítil. Lánveitendur þurfa að gæta að aukinni áhættu í geiranum.

Áhætta í rekstri fjármálainnviða hefur aukist. Vaxandi netógn hefur fylgt tæknivæðingu, þróun í gervigreind og óróa á alþjóðavettvangi. Mikilvægt er að Seðlabanki Íslands, önnur stjórnvöld og aðilar á fjármálamarkaði vinni markvisst saman að því að draga úr áhættu og að treysta viðbúnað svo hægt verði að bregðast skjótt og örugglega við alvarlegum rekstraratvikum og tryggja samfellu nauðsynlegrar fjármálaþjónustu. Samhæfður viðbúnaður gegn rekstraratvikum er grundvöllur fjármálastöðugleika.

Kortagreiðslur í netleysi eru þýðingarmikill þáttur í viðnámsþrótti greiðslumiðlunar. Sú lausn verður innleidd um mitt ár. Fjármálastöðugleikanefnd leggur áherslu á að fjölga þurfi greiðsluleiðum með innviðum fyrir nýjar greiðslulausnir, svo sem greiðslur með millifærslum. Fjölbreytni í greiðslumiðlun eykur seiglu fjármálakerfisins og dregur úr líkum á víðtækri röskun við alvarleg rekstraratvik.

Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að eftirfarandi innviðir teljist kerfislega mikilvægir og þess eðlis að röskun á starfsemi þeirra geti haft áhrif á fjármálastöðugleika: Millibankagreiðslukerfi Seðlabankans og verðbréfauppgjörskerfi Nasdaq sem grunninnviði fjármálakerfisins og innlánakerfi Reiknistofu bankanna, greiðslukerfi Reiknistofu bankanna og rafræn auðkenning í fjármálaþjónustu hjá Auðkenni ehf. sem kjarnainnviði fjármálakerfisins.

Fjármálastöðugleikanefnd ákvað að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Albert Jónsson: Bandaríkin munu áfram verja Ísland – ekki síður þeirra hagsmunir en okkar

Albert Jónsson: Bandaríkin munu áfram verja Ísland – ekki síður þeirra hagsmunir en okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Miðflokkurinn er ekki stjórntækur

Sigmundur Ernir skrifar: Miðflokkurinn er ekki stjórntækur
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Einarsson skrifar: Miðflokkur: Gul viðvörun

Guðmundur Einarsson skrifar: Miðflokkur: Gul viðvörun
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Albert Jónsson: Rússland er dvergur samanborið við Kína – reynir að vera meira en það er

Albert Jónsson: Rússland er dvergur samanborið við Kína – reynir að vera meira en það er
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halldór Jörgen skrifar: Þegar skilyrt nei verður „einfaldlega já“

Halldór Jörgen skrifar: Þegar skilyrt nei verður „einfaldlega já“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Örvænting formanns Miðflokks – sér flokkinn úti í horni – hví skyldi vera tregða til samstarfs við Miðflokkinn?

Orðið á götunni: Örvænting formanns Miðflokks – sér flokkinn úti í horni – hví skyldi vera tregða til samstarfs við Miðflokkinn?