

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, er orðin borgarstjóri Reykjavíkur. Þetta var samþykkt á fyrsta fundi borgarstjórnar eftir kosningar í hádeginu. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, verður forseti borgarstjórnar og Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, verður formaður borgarráðs, svo skipta þau um embætti eftir eitt ár. Einnig verður kosið í ýmis ráð og nefndir.
Hildur sagði í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun að hún ætli að stofna nýtt skólastig til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla, það yrði kallað dagheimili. Þá ætlar hún að flýta Miklubrautargöngum: „Við erum ekki á móti því að ný göng, nýir stofnvegir í göngum, yrðu fjármagnaðir með gjöldum. Það er annað sem við viljum fá út úr þessari endurskoðun, að við viljum kanna möguleikann á því að Miklubrautargöng, sem eru aftast í framkvæmdaröðinni í sáttmálanum þannig að við myndum sjá þau eftir 15, jafnvel 25 ár ef maður er raunsær, við myndum vilja taka þau þarna út og koma þeim í einkaframkvæmd og þá yrðu þau fjármögnuð með hóflegri gjaldtöku,“ sagði Hildur og bætti við: „En þegar við setjum gjöld á vegi þá þarf alltaf að bjóðast önnur leið fyrir þá sem ekki vilja greiða fyrir greiðari leið.“
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, var jákvæður í Bítinu á Bylgjunni í morgun þegar hann ræddi um nýja borgarstjórann. Honum lítist vel á Hildi sem borgarstjóra. „Hugmyndafræðilega erum við ekki alveg á sama stað og við munum beita okkur fyrir því að það verði góð stemning í borgarstjórn og við munum eins og ég sagði áðan styðja við góð mál.“
Hann sagði þó að fánamálið svokallaða slái sig illa en nýi meirihlutinn ætlar að breyta reglum til að hætta að flagga daglega öðrum fánum en þeim íslenska nema við sértök tilefni en sumir hafa lengi kvartað undan því að fánar Palestínu, Úkraínu sem og hinsegin fáninn séu dregnir að húni daglega við Ráðhús Reykjavíkur.
„Parísarturninn er settur í LED-ljósaliti til þess að styðja við lönd,“ segir Pétur. „Það er fólk á Íslandi frá Úkraínu og Palestínu, það má sýna þeim stuðning, það þarf kannski ekki þrjá mánuði, kannski væri ein helgi sem hægt væri að gera þetta. Punkturinn er sá að ástæðan fyrir því að þau eru að taka burt þessar reglur sem settar voru á síðasta kjörtímabili er til þess að það sé ekki umræða um þetta. Nú á þetta bara að vera íslenski fáninn, punktur, slut. Það lokar ekki á það að ég geti komið með tillögu á morgun að við flöggum norska fánanum því að norski kóngurinn er að deyja eða eitthvað, það hefði enginn sett sig á móti því.“
Býst hann við frekari umræðu um þessi fánamál. „Ég óttast að ástæðan sé þessi, ég veit að það er ástæða fyrir því að hinsegin samfélagið hefur áhyggjur af þessu og mannréttindafélög hafa áhyggjur af þessu því að fólk telur þetta breytingu til að koma til móts við hópa sem eru á móti Palestínufánanum.“
Hér má fylgjast með fundinum í beinni: