
Ellilífeyrisþeginn var sannfærður um að dróninn væri á vegum glæpamanna sem væru að kanna aðstæður áður en þeir myndu brjótast inn í húsið hans. Hann fór því inn og sótti riffil og skaut síðan drónann niður með einu skoti.
BFMTV sjónvarpsstöðin skýrir frá þessu og segir að þegar dróninn lenti hafi komið í ljós að hann var ekki á vegum neinna glæpamanna því bæjaryfirvöld áttu hann. Var hann notaður til að skoða þök húsa í bænum.
Bæjarstjórinn í þessum 1.300 manna bæ sagði, svolítið pirraður að allt hefði gengið „eðlilega fyrir sig“ þar til drónanum var flogið yfir ákveðið hverfi bæjarins.
Fljótlega eftir að dróninn var skotinn niður lá ljóst fyrir hver var að verki og var ellilífeyrisþeginn handtekinn og fluttur til yfirheyrslu á lögreglustöð bæjarins. Hann var síðan látinn laus að yfirheyrslunni lokinni.
„Þetta er venjulega fínn maður en hann missti stjórn á sér,“ sagði bæjarstjórinn.