
Elliot Bastiani, 31 árs, greindi frá reynslu sinni í viðtali við BBC á dögunum og sagði stöðuna á vinnumarkaðnum hafa versnað verulega á síðustu árum.
Hann flutti nýverið aftur til Chelmsford í Essex eftir að hafa aflað sér reynslu í framleiðsluiðnaði með störfum víða í Evrópu, en þrátt fyrir það hefur honum ekki tekist að tryggja sér fasta vinnu í heimalandi sínu.
„Ég hef sótt um hjá sumum þessara staða tíu sinnum. Ég gæti í raun allt eins hent ferilskránni minni beint í pappírstætarann, “ sagði Bastiani.
Samkvæmt nýjustu tölum stendur atvinnuleysi í Bretlandi í 5,2 prósentum og er nú nálægt því að vera það mesta í fimm ár.
Ungt fólk hefur sérstaklega fundið fyrir þessu, en áætlað er að 957 þúsund einstaklingar á aldrinum 16 til 24 ára hafi verið hvorki í námi, vinnu né starfsþjálfun á síðasta fjórðungi ársins 2025.
Bastiani telur að þróunin hafi hafist í kjölfar Covid-faraldursins. Þá hafi hækkanir á tryggingargjaldi atvinnurekenda og lágmarkslaunum einnig gert fyrirtæki tregari til að ráða nýtt starfsfólk.
Bastiani var búsettur í Hollandi og þar áður í Frakklandi, en hann segir ástandið í Bretlandi hreint ekki gott.
„Jafnvel til að vinna í matvörubúðinni í hverfinu vilja atvinnurekendur sjá prófskírteini og margra ára reynslu. Hvernig á tvítugur einstaklingur að vera kominn með fimm ára reynslu?“ sagði hann.
Ian Banks, sem rekur ráðningarskrifstofu í Southend, segir við BBC að mikilvægt sé að umsækjendur aðlagi ferilskrár sínar að hverju starfi fyrir sig til að auka líkurnar á árangri. Hann telur jafnframt að ráðningarferlið sé orðið of ópersónulegt.
„Gamaldags leiðir eins og að hringja beint í fyrirtæki eða tengjast fólki sem þar starfar hafa dvínað mikið,“ sagði Banks.