fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Þingflokkar stjórnarinnar talsvert stærri en þingflokkar andstöðunnar – formannsskipti breyta litlu hjá Sjálfstæðisflokki og Framsókn

Eyjan
Þriðjudaginn 24. mars 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samfylkingin er áfram langstærsti flokkurinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu þó hann missi 1,7 prósentustig frá könnun fyrir mánuði. Miðflokkurinn missir einnig fylgi á sama tíma sem nemur 0,6 prósentustigum. Sjálfstæðisflokkurinn missir lítils háttar fylgi, Viðreisn bætir við sig 0.6 prósentustigum frá því í febrúar eins og Flokkur fólksins. Athygli vekur að Framsókn bætir engu við sig þrátt fyrir landsfund og formannsskipti sem virðast ekki ætla að hjálpa flokknum sem mælist með 7,1 prósent fylgi.

Orðið á götunni er að athygli veki að formannsskipti í Framsókn og Sjálfstæðisflokki séu hvorugum flokknum að hjálpa ef marka má könnun Maskínu. Framsókn fékk 7,8 prósenta fylgi í síðustu kosningum sem er það lægsta sem flokkurinn hefur fengið en hann missti átta þingmenn milli kosninga. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 19,4 prósenta fylgi í kosningunum 30. nóvember 2024 sem er einnig versta útreið flokksins í þingkosningum frá upphafi. Eftir formannsskipti fyrir einu ári var þess vænst að hagur Sjálfstæðisflokksins myndi vænkast en það hefur ekki raungerst. Hann mælist nú með 16,1 prósent fylgi sem er ívið lakara en í febrúar sl. Guðrún Hafsteinsdóttir virðist ekki vera að heilla kjósendur með stöðugu niðurrifstali sínu á Alþingi.

Fylgi Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins samkvæmt könnun Maskínu nemur 45,3 prósentum en fylgi minnihlutaflokkanna á Alþingi, Miðflokks, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er 41,6 prósent. Flokkar utan þings mælast í könnuninni þannig að Vinstri græn fengju 4,4 prósent en Sósíalistaflokkurinn 3,5 prósent.

Miðað við þessa könnun Maskínu fengi Samfylkingin 18 þingmenn kjörna og bætti við sig þremur frá síðustu kosningum, Miðflokkur fengi 12 menn kjörna en náði átta þingmönnum í kosningunum 2024, Sjálfstæðisflokkur fengi 11 menn kjörna en fékk 14 þingsæti síðast, tapaði þremur sætum, Viðreisn fengið 10 þingmenn, tapaði einum, Flokkur fólksins fengi fjóra menn kjörna en tapaði sex sætum frá síðustu kosningum, Píratar fengju nú þrjá menn kjörna en náðu engum í kosningunum og Framsókn héldi sínum fimm þingmönnum.

Orðið á götunni er að niðurstaða þessarar stóru könnunar Maskínu hljóti að vera mikil vonbrigði fyrir stjórnarandstöðuna, sérstaklega fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn sem báðir hafa skipt um formenn til að bæta stöðu sína. Áhrifin hafa reynst þveröfug hjá Sjálfstæðisflokki og Framsókn hefur ekki náð að rétta hlut sinn þrátt fyrir mikla athygli sem landsfundur flokksins fékk nýlega þar sem formannsskipti fóru fram. Lilja Alfreðsdóttir, nýr formaður Framsóknar, sem féll út af þingi í síðustu kosningum, er í mjög erfiðri stöðu sem formaður flokks án þess að eiga sæti á Alþingi.

Orðið á götunni er að alltaf hafi verið vitað að sá tími myndi koma á kjörtímabilinu að úr fylgi við ríkisstjórnina myndi draga vegna þess að engin ríkisstjórn fær eintóman dans á rósum. Sagan segir okkur það. Forsætisráðherra og ríkisstjórnin vilja örugglega bæta við sig fylgi á ný en geta engu að síður vel við unað þrátt fyrir linnulausar árásir á stjórnina í smáum og stórum málum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Heiða Kristín Helgadóttir: Gott að þjóðaratkvæðagreiðslan komi ekki beint ofan í almenna pólitíska umræðu

Heiða Kristín Helgadóttir: Gott að þjóðaratkvæðagreiðslan komi ekki beint ofan í almenna pólitíska umræðu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Ofurvextir bjúgverpill sem hittir fyrir Seðlabankann sjálfan – draga úr virkni vaxtatækisins

Orðið á götunni: Ofurvextir bjúgverpill sem hittir fyrir Seðlabankann sjálfan – draga úr virkni vaxtatækisins
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Framtíðin var í gær

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Framtíðin var í gær
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sendir sínum gamla samstarfsflokki pillu – „Orðið svolítið mikið svona mussustemmning víða“

Sendir sínum gamla samstarfsflokki pillu – „Orðið svolítið mikið svona mussustemmning víða“