fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Landsréttur þyngir dóm Sigurjóns – Nauðgaði þroskaskertum undirmanni ítrekað

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 16:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur dæmdi í dag Sigurjón Ólafsson í níu ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertri konu og syni hennar, sem hann lét horfa á kynlífsathafnir þeirra. Sigurjón nauðgaði konunni ítrekað og var í samskiptum við aðra karlmenn sem einnig nauðguðu konunni.

Sigurjón var yfirmaður konunnar þegar hann starfaði sem verslunarstjóri í stórri verslun á höfuðborgarsvæðinu.

Vísir greindi fyrstur frá dómnum sem féll kl. 15 í dag. Dómurinn hefur ekki verið birtur á vef dómstólsins.

Með dómnum þyngir Landsréttur dóm héraðsdóms Reykjavíkur frá því í janúar í fyrra. Með honum var Sigurjón dæmdur í átta ára fangelsi. Sigurjón áfrýjaði sjálfur dómi héraðsdóms.

Sjá einnig: Sigurjón dæmdur í átta ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertri konu og syni hennar

Brotin voru framin reglulega og stóðu yfir  á árunum 2016 til 2020. Segir í ákæru að Sigurjón hafi notfært sér að konan gat ekki spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar og hafi hann beitt hana ólögmætri nauðung með því að nýta sér yfirburði sína og aðstöðumun gagnvart henni, sem og traust henanr til hans vegna stöðu hans gagnvart henni, meðal annars sem yfirmanns hennar. Sigurjón var einnig sakfelldur fyrir að hafa látið konuna hafa samræði við aðra karlmenn.

Sigurjón var jafnframt sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn syni konunnar með því að láta hann vera viðstaddan á meðan hann hafði mök við móður drengsins. Brotið gegn syninum lýtur annars vegar að því að hann stríðir einnig við andlega fötlun en hins vegar vegna þess að hluta brotatímans var hann undir lögaldri og er því líka um barnaverndarlagabrot að ræða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova