fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Fréttir

Tómas rýfur þögnina – Dómurinn sé fullur af alvarlegum rangfærslum og ærumeiðingum – „Andemariam Beyene var ekki aðeins sjúklingur minn“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 23. maí 2026 16:15

Tómas Guðbjartsson Mynd: Fréttablaðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tómas Guðbjartsson skurðlæknir gagnrýnir í yfirlýsingu dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, um bótaskyldu ríkisins í hinu svokallaða plastbarkamáli, harðlega. Í dómnum er Tómas borinn þungum sökum. Segir hann dóminn fullan af rangfærslum og þar séu hafðar uppi ærumeiðingar í hans garð. Sjúklingurinn sem málið snúist um hafi verið vinur hans en ekki bara sjúklingur. Yfirlýsing Tómasar fer hér á eftir í heild sinni:

Síðastliðinn fimmtudag gekk dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli fjölskyldu Andemariam Beyene gegn íslenska ríkinu og í kjölfarið varð mikill og óvæginn fréttaflutningur af málinu. Vegna rökstuðnings dómenda fyrir niðurstöðu í málinu og eftirfarandi umfjöllunar fjölmiðla finn ég mig knúinn til að koma yfirlýsingu þessari á framfæri:

Í rökstuðningi dómsins er ekki einungis að finna alvarlegar rangfærslur um atvik málsins, heldur eru þar settar fram mjög ærumeiðandi fullyrðingar um persónu mína, meintar hvatir og meintan ásetning, án þess að ég hafi fengið tækifæri til andsvara. Ég var ekki aðili að dómsmálinu og vissi ekki af því að vitnaleiðslur stæðu yfir.

Að auki var enginn þeirra íslensku sérfræðilækna annarra sem komu að greiningu og mati á meðferðarkostum á sínum tíma kallaðir fyrir sem vitni. Aðeins einn íslenskur sérfræðilæknir er kallaður til vitnis, aðili sem hafði enga aðkomu að málinu á sínum tíma, og því mjög umhugsunarvert að hann gæti vitnað um atvik málsins. Hvorki lögmaður stefnanda né íslenska ríkisins óskaði eftir að ég gæfi vitnaskýrslu við aðalmeðferð málsins sem mér þykir sæta mikilli furðu. Dómurinn horfir algerlega framhjá niðurstöðu hinnar óháðu rannsóknarnefndar Háskóla Íslands og Landspítala háskólasjúkrahúss frá 2017, sem leidd var af Páli Hreinssyni, rannsóknarnefnd sem ræddi við marga lækna sem höfðu komið að málinu auk annarra lækna sem höfðu skoðanir á málinu. Skýrsla rannsóknarnefndarinnar fjallaði ítarlega um þetta mál á sínum tíma frá mörgum hliðum. Mun sú skýrsla þó hafa verið hluti af framlögðum gögnum í málinu.

Í rökstuðningi héraðsdóms er alvarlega snúið út úr málavöxtum með þeim hætti að sú atvikalýsing er í engu samræmi við það sem raunverulega gerðist í málinu og hefði án efa mátt leiðrétta ef leitað hefði verið eftir vitnisburði mínum við meðferð málsins. Í þessu sambandi er mikilvægt að það komi fram að tilvísun sjúklingsins til Karolinska sjúkrahússins var vegna geislameðferðar og gerð í nánu samstarfi við sérfræðinga krabbameinsdeildar Landspítala, í samræmi við álit sérfræðinga Massachusetts General Hospital um líknandi meðferð. Ákvörðun um að sjúklingurinn myndi gangast undir plastbarkaaðgerð var einhliða tekin af Karolinska sjúkrahúsinu og ekkert samráð haft við mig eða aðra lækna Landspítalans. Í ljósi þessara röngu fullyrðinga um málsatvik er óhjákvæmilegt að dómi héraðsdóms verði áfrýjað að mínu mati.

Eins og fram hefur komið á fyrri stigum þessa máls, t.a.m. í niðurstöðu framangreindrar rannsóknarnefndar HÍ og LSH, í umfjöllun fjölmiðla af dómsmáli gegn lækninum Macchiarini í Svíþjóð og víðar, leikur enginn vafi á því að mistök voru gerð við læknismeðferð Andemariam Beyene. Niðurstaða rannsóknarskýrslunnar er hins vegar skýr.

Það var á ábyrgð lækna Karolinska háskólasjúkrahússins að Andemariam var boðin þátttaka í tilraunameðferð og þeir læknar sem þar störfuðu báru ábyrgð á öllum ákvörðunum um skipulagningu og útfærslu aðgerðarinnar. Jafnframt var það niðurstaða skýrslunnar að íslenskir læknar hefðu einfaldlega ekki verið hafðir með í ráðum um þessi atriði og að læknirinn Macchiarini hefði blekkt mig og fleiri í þessu ferli.

Andemariam Beyene var ekki aðeins sjúklingur minn heldur einnig vinur. Ég gerði allt sem ég gat til að hjálpa honum og fjölskyldu hans á þessum tíma. Hugur minn er hjá fjölskyldu Andemariam og ég styð þau öll heils hugar í að leita réttar síns í þessu máli og óska þeim alls hins besta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?
Fréttir
Í gær

Kynsjúkdómafaraldur í Evrópu – Ísland í vondum málum

Kynsjúkdómafaraldur í Evrópu – Ísland í vondum málum
Fréttir
Í gær

Ísland er 15. besta land í heimi – Heilsan góð en dýralífið fábreytt

Ísland er 15. besta land í heimi – Heilsan góð en dýralífið fábreytt
Fréttir
Í gær

Sætti sig ekki við að þurfa að endurgreiða bætur – Segir stjórnvöld hafa bannað sér að vinna

Sætti sig ekki við að þurfa að endurgreiða bætur – Segir stjórnvöld hafa bannað sér að vinna
Fréttir
Í gær

Gabriel Douane dæmdur í fangelsi – Braut augntóft í tveimur mönnum

Gabriel Douane dæmdur í fangelsi – Braut augntóft í tveimur mönnum
Fréttir
Í gær

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“