

Margrét Tryggvadóttir, rithöfundur, bókaútgefandi, fyrrum alþingismaður og formaður Rithöfundasambands Íslands varar við því að í umferð séu tölvupóstar sem sendir hafi verið út í hennar nafni en séu komnir frá svikahröppum. Pósturinn sem Margrét birtir er eins og oft er í tilfellum þar sem um tilraun til netsvika, á íslensku, er að ræða orðaður á mjög undarlegan hátt. Sams konar póstur hefur verið sendur út undir nafni Finnbjörns Hermannssonar forseta ASÍ.
Pósturinn sem Margrét birtir á Facebook var sendur til starfsmanns Rithöfundasambands Íslands en Margrét er formaður sambandsins. Pósturinn var sendur úr netfangi sem svipar til netfangs Margrétar en það þarf aðeins að skoða heimasíðu Rithöfundasambandsins til að sjá að netfangið sem pósturinn er sendur úr er ekki netfang Margrétar. Í póstinum er skrifað:
„Ég er með hálsbólgu vegna barkabólgu og get því ekki talað í síma eins og er. Ég þarf einnig að fara í læknisráðgjöf og er með marga einkafundi. Gætirðu gert eitthvað fyrir mig. Takk.
Kveðja,
Margrét Tryggvadóttir
Formaður“
Miðað við orðalagið þá er augljóst að pósturinn er ekki skrifaður af einhverjum sem hefur íslensku að móðurmáli og Margrét og umræddur starfsmaður voru ekki lengi að átta sig á svikunum. Margrét skrifar á Facebook:
„Það er einhver að þykjast vera ég! Ég er sem sagt ekki að senda tölvupósta út um hvippinn og hvappinn og biðja um greiða.“
Halla Gunnarsdóttir formaður VR greinir frá því í athugasemd við pistil Margrétar að henni hafi borist sams konar póstur undir nafni Finnbjörns Hermannssonar forseta ASÍ.
Halla birtir mynd af póstinum sem henni barst en hann er orðaður nákvæmlega eins og pósturinn sem sendur var út undir nafni Margrétar. Halla var auðvitað ekki lengi að átta sig á að umræddur póstur væri ekki raunverulega frá Finnbirni og skrifar í léttum dúr:
„Forseti ASÍ er í svipuðum gír. Meira hálsbólguvesenið á ykkur. Ég er boðin og búin til að aðstoða.“
Margrét svarar að bragði:
„Gott að heyra. Við Finnbjörn förum kannski bara saman í sóttkví og þú tekur einkafundina.“
Halldór Auðar Svansson fyrrym borgarfulltrúi telur ljóst að um sjálfvirkar sendingar hafi verið að ræða og að tölvuþrjótar hafi stillt tölvukerfi til að finna fólk í einhvers konar stjórnunarstöðum og senda út pósta undir nöfnum þess til að reyna að svíkja út peninga.
Í sumum athugasemdum er því lýst yfir að þótt póstarnir séu augljóslega ekki góðra gjalda verðir séu þeir samt fyndnir. Margrét tekur undir það en bætir við:
„Fyndnast samt að í gærkvöldi og nótt helltist yfir mig einhver hálsbólga.“