fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Marinó furðar sig á þrjóskunni á höfuðborgarsvæðinu – „Hysjið upp um ykkur buxurnar“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 14:30

Svifryk hefur verið gríðarlegt undanfarna daga og vikur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marinó G. Njálsson, ráðgjafi og samfélagsrýnir, furðar sig á þrjósku veghaldara á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar götusópun. Vegagerðin, borgar og bæjarsjóðir hafa sparað sér fúlgur í snjómokstur í vetur en senda þó ekki götusóparana út til að draga úr hinu mikla ryki sem myndast í stillunni.

„Þessi vetur hefur verið einstaklega hagstæður fyrir borgarsjóð og marga bæjarsjóði, a.m.k. á SV-horninu. Ekki má gleyma Vegagerðinni. Varla hefur fallið snjókorn af himni eftir að vetur gekk í garð og ekki verið mikil þörf á snjómokstri,“ segir Marinó í færslu á samfélagsmiðlum. „Í staðinn er annar fjandi að angra íbúa víða, sem er hið mikla ryk sem er á götum.“

Í gær fór gildi grófs svifryks við Grensásveg í um það bil 220 míkrógrömm á rúmmetra. Sólarhringsheilsuverndarmörk eru 50 míkrógrömm.

„Reykjavíkurborg hvetur fyrirtæki til að halda fólki heima, svo borgin geti sparað krónur sem annars færu í götuþrif,“ segir Marinó. „Svo sem ekki nýtt, að stjórnendur borgarinnar hafi ekki áttað sig á því, að hægt er að nota götusópara til að draga úr ryki. Kannski óþarfi að benda bara á stjórnendur í Reykjavík, því ég get ekki séð að þeir í Kópavogi séu neitt skarpari.“

Fer ekki með snjónum

Spyr hann af hverju þetta sé. Það er hvort verið sé að bíða eftir næstu rigningu til að skola rykinu í burtu.

„Ekki fer hún með snjónum, því hann hylur bara rykið og breytir því svo í drullu. Hvorutveggja, rykið eða drullan, sest svo á bílana, sem aka um göturnar, og hef ég líklega aldrei séð eins mikið af eins skítugum bílum og þessar vikurnar,“ segir hann og bendir á annað vandamál, óþarfa vandamál. „Og vegna þess að sveitarfélögin skilja ekki samhengið á milli götusópara og þess að losna við rykið, þá þurfa bíleigendur að þvo bíla sína oftar. Það er svo sóun á vatni og veldur óþarfa mengun.“

Kosningar í vor

Skorar hann á bæði Vegagerðina og sveitarfélögin að hleypa götusópurunum út á vegina. Byrja þurfi að þrífa þær götur sem þungaumferð fer um. Einn sæmilega þungur bíll, svo sem vörubíll eða strætisvagn, eys upp miklu ryki sem setjist á bílana sem á eftir koma eða þá yfir gangandi vegfarendur sem ætluðu sér kannski í heilsubótargöngu.

„Satt best að segja, þá finnst mér þessi þrjóska vegahaldara í þéttbýlinu hérna á höfuðborgarsvæðinu vera stór furðuleg,“ segir Marinó að lokum. „Keyrt er um götur með rykbindiefni í staðinn fyrir að nýta vel þekkta tækni í formi götusópara. Hysjið upp um ykkur buxurnar og látið hendur standa fram úr ermum. Munið að það eru kosningar í vor og það gæti tryggt atkvæði að gera göturnar þrifalegri!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova