fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Sævar Karl selur einstaka eign

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 9. febrúar 2026 09:39

Sævar karl Ólason. Mynd: Gunnar V. Andrésson/Fréttablaðið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sævar Karl Ólason, tískufrömuður og myndlistarmaður og eiginkona hans, Erla Þórarinsdóttir, hafa sett einbýlishús sitt á Smáragötu 4 á sölu. Eignin er skráð á Sævar Karl og óskað er eftir tilboði.

Húsið er 370 fm á þremur hæðum byggt árið 1931 og er með bílskúr og stórum garði í miðborginni. Húsið hefur verið í eigu aðeins tveggja aðila frá því það var byggt. Árið 1984 létu núverandi eigendur byggja við húsið, viðbyggingin er vel heppnuð og rímar fullkomlega við útliti hússins. Eigninni er vel við haldið í  gegnum árin,  að innan sem utan. Lóðin og garðurinn eru sérstök, með fjölbreytilegum tegundum trjáa og plantna ásamt veröndum sem bjóða upp á að elta sólarsvæðin á fallegum sumardögum.

Jarðhæð skiptist í forstofu, gestasalerni, móttökustofu og sólstofu, setustofu, borðstofu, eldhús og geymslu.

Efri hæð skiptist í hol, vinnustofu/sjónvarpsherbergi, tvö svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi.

 

Kjallarinn skiptist í tvö svefnherbergi, þvottaherbergi og baðaðstöðu.

Bílskúrinn er í dag nýttur sem vinnustúdíó. Í garðinum er tehús, notað fyrir geymslu garðhúsgagna og verkfæra. 15 fm glerhús/studio síðan 2023.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu