fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
EyjanFastir pennar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Meinið, meðulin og hliðarverkanir þeirra

Eyjan
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir viku jókst verðbólgan. Í gær ákvað Seðlabankinn óbreytta stýrivexti. Það þýðir smá lækkun raunvaxta.

Á Sprengisandi um síðustu helgi var Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra spurður hvort 130 milljarða króna hækkun ríkisútgjalda væri ekki helsta ástæða verðbólgunnar.

Fjármálaráðherra benti spyrlinum á að þetta væri tölfræði stjórnarandstöðunnar. Stærsti hlutinn væri verðbólga. Með öðrum orðum froða. Raunveruleg útgjaldaaukning væri óveruleg.

Hann hefði líka mátt benda á að óháð tölfræði sýndi að hlutfall ríkisútgjalda af þjóðarframleiðslu væri óbreytt. Það er ekki fullkominn mælikvarði en leiðréttir fyrir froðunni.

Sá eini samanburður var þá talinn heiðarlegur

Þessi tilvísun í eitt af mörgum verðbólgusamtölum síðustu daga sýnir hversu ófrjó og ómarkviss umræðan er þegar hver notar sinn mælikvarða. Ég er ekki frá því að gagnrýni stjórnarandstöðunnar hafi verið beittari á sinni tíð þegar allir reiknuðu eins.

Undir lok sjöunda áratugar síðustu aldar skaut Magnús Kjartansson ritstjóri Þjóðviljans á Viðreisnarstjórnina á þennan veg:

„Íslenska krónan er orðin mikill vesalingur … Krónan í ár er allt annað en krónan í fyrra, svo að ekki sé minnst á árið í hitteðfyrra … Þegar borin eru saman verðmæti milli ára verður því að framkvæma flókna útreikninga, svo að um sé að ræða sambærilegar krónur …“

Svo benti hann á að þáverandi fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Magnús Jónsson frá Mel, hefði þá nýlega í umræðum á þingi talið þann eina samanburð heiðarlegan, sem reiknaður væri í dollurum.

Sér íslensk mismunun

Fyrir aldarfjórðungi eða svo ákvað Alþingi að leyfa fyrirtækjum, sem uppfylltu tiltekin skilyrði, að nota alvöru mælikvarða í ársreikningum. Meir en 40% þjóðarframleiðslunnar er nú á höndum fyrirtækja, sem njóta þessarar sjálfsögðu aðstöðu.

Núverandi sendiherra Íslands í Washington sagði fyrir nokkrum misserum meðan hún var enn framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs að fyrirtækin hagnýttu þessa heimild fyrst og fremst til þess að leggja raunhæft mat á rekstrarárangur, gera alvöru samanburð frá einu ári til annars og sjá hvernig þau stæðu gagnvart samkeppnisaðilum.

Fyrir rúmum áratug töluðu forystumenn atvinnulífsins fyrir því að allir sætu við sama borð með nothæfan mælikvarða. Nú telja þeir að hagsmunum Íslands sé best borgið með mismunun.

Þeir sem tala fyrir slíku hagsmunamati skulda skýringu á því hvers vegna þessi sér íslenska mismunun er þeim svo mikilvæg og hverju hún skilar þjóðarbúinu.

Ofnotkun á mixtúrum

Í áranna rás höfum við beitt ýmsum meðulum til að rétta mælikvarðann af. Samt er það svo að öll fyrirtæki, sem það mega, kjósa að nota annan mælikvarða.

Segja má að þau greiði atkvæði með fótunum gegn krónunni.

Við notum einkum tvær mixtúrur í ríkari mæli en aðrar vestrænar þjóðir til þess að halda uppi verðgildi krónunnar.

Hitt er að óæskilegar hliðarverkanir fylgja jafnan ofnotkun á mixtúrum.

Haftamixtúran

Með gjaldeyrishöftum á lífeyrissjóði takmörkum við frjáls viðskipti, sem nemur ríflega heilli þjóðarframleiðslu, til þess að falsa raungildi krónunnar.

Fyrir vikið er krónan stöðugri en hún væri í jafn frjálsum markaðsbúskap og þekkist í samkeppnislöndunum.

Slík fölsun á verðgildi krónunnar hefur hins vegar afleiðingar:

Hún eykur áhættu lífeyrisþega, veldur bólumyndun á eignamarkaði og hefur leitt til þess að félagslegt fjármagn er nú helmingur eiginfjár fyrirtækja á markaði.

Áhættufjármagn einkaframtaksins er að sama skapi minna en í samkeppnislöndunum. Hætt er við að það slævi verðmætasköpunina.

Vaxtamixtúran

Önnur mixtúra sem við notum til að halda uppi verðgildi krónunnar er að hafa raunvexti tvöfalt til þrefalt hærri en í samkeppnislöndunum.

Þannig má ráða af gögnum Seðlabankans að nafnvextir fari tæpast niður fyrir 5,5 til 6% þótt verðbólgumarkmiðið náist.

Stjórnmálamenn allra flokka þurfa að segja kjósendum satt um þennan veruleika, sem blasir við alveg óháð því hver situr í ráðherraskrifstofunni í Arnarhváli.

Þessi veruleiki bítur sem betur fer ekki fyrirtækin sem nota alvöru mælikvarða og taka lán á lægri vöxtum. En hann þrengir að ríkissjóði og velferðarkerfinu og skilur heimilin og önnur fyrirtæki eftir í verri stöðu en vera þyrfti.

Vextir og ríkisfjármál

Vextir eru eina skyndiúrræðið sem stjórnvöld geta beitt gegn verðbólgusveiflum.

Ríkisfjármálin þurfa stöðugt og til lengri tíma að spila með. En þau eru í eðli sínu ekki sveiflujafnari frá einum ársfjórðungi til annars. Það væri að pissa í skóinn sinn.

Heildarmyndin

Fyrir dyrum stendur að fela þjóðinni að ákveða hvort aðildarviðræðum við Evrópusambandið verður haldið áfram.

Þá gefst tækifæri til þess að ræða mælikvarðann, sem stór hluti fyrirtækja vill ekki nota, og afleiðingar þess fyrir önnur fyrirtæki, heimilin og velferðarkerfið að ekki hefur verið ráðist í kerfisbreytingu til að jafna aðstöðumuninn.

Nýr mælikvarði kallar vissulega á jafn ríkan aga og fyrirtækin beita, sem standa utan krónunnar. Það verður áraun í fyrstu.

Kjarni málsins er að þessi heildarmynd þarf að vera sýnileg þegar stjórnmálamenn allra flokka fara út á meðal fólksins til að ræða Evrópumálin. Og þeir verða að útskýra: Hvers vegna hafa mixtúrurnar, sem gefnar hafa verið áratugum saman, ekki virkað betur en raun ber vitni?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Samfélagsmiðill fyrir sjálfstæða Íslendinga

Nína Richter skrifar: Samfélagsmiðill fyrir sjálfstæða Íslendinga
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Lokaorð læknisins

Óttar Guðmundsson skrifar: Lokaorð læknisins
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Evrópubölsýnin

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Evrópubölsýnin
EyjanFastir pennar
31.01.2026

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn
EyjanFastir pennar
30.01.2026

Nína Richter skrifar: Vá hvað ég er sæt

Nína Richter skrifar: Vá hvað ég er sæt