Sýrlenskur maður að nafni Tarek Rajab hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir samtals þrjár líkamsárásir gegn tveimur konum og einum karlmanni en brotin virðast öll hafa verið framin á Suðurnesjum. Það kemur ekki fram í dómnum hversu lengi hann hefur dvalist á Íslandi en þess er hins vegar getið að hann hafi hlotið fjölda dóma í Austurríki þar á meðal fyrir ofbeldisbrot.
Fyrstu árásina sem Tarek var ákærður fyrir framdi hann í ágúst 2024. Samkvæmt ákæru réðst hann þá á konu á sameiginlegu salerni á dvalarstað þeirra beggja, sló hana í bringuna með þeim afleiðingum að hún lenti með bakið og höfuðið í innréttingu og vegg á baðherberginu. Fékk konan eymsli og verki víða um líkamann, auk mars á einum stað og þar að auki hlaut hún heilahristing.
Önnur árás sem Tarek var ákærður fyrir var framin í febrúar 2025. Samkvæmt ákærunni réðst hann þá á karlmann, sparkaði og sló ítrekað í höfuð hans og búk og notaði einnig ýmsa innanstokksmuni við árásina. Var árásin framin í herbergi þolandans og lá hann þar alblóðugur þegar lögreglan kom á staðinn. Þolandinn hlaut mörg rifbrot, áverka og eymsli víða um líkamann og einnig blæðingar í húð. Sömuleiðis var Tarek ákærður fyrir eignaspjöll með því að hafa eyðilagt ýmsa muni í eigu þolandans á meðan árásinni stóð.
Þriðja árásin sem Tarek var ákærður fyrir var framin gegn konu sem reyndi að koma áðurnefndum karlkyns þolanda til hjálpar. Samkvæmt ákærunni sló Tarek hana í höfuðið og hrinti henni þannig að hún lenti á vegg. Hlaut konan, sem er kærasta Tarek, áverka á hnakka.
Samkvæmt dómnum neitaði Tarek sök.
Í lýsingu á málavöxtum þegar kemur að fyrri árásinni sagði konan þegar hún kærði árásina til lögreglunnar á Suðurnesjum að hún hefði verið í fríi frá vinnu umræddan dag og heyrt þá annan karlmann og Tarek rífast hástöfum frammi á gangi hins ónefnda dvalarstaðar þar sem þau öll bjuggu en konan og fyrrnefndi karlmaðurinn eru bæði frá Úkraínu. Ágreiningurinn hafi reynst vera um að reykt hefði verið kannabis innandyra þrátt fyrir bann þar um. Tarek hefði viðurkennt að hafa reykt. Hún hefði þá bent honum á skilti þar sem stæði að bannað væri að reykja innandyra á dvalarstaðnum. Fljótlega eftir þessi orðaskipti hafi hann ráðist á hana. Sagðist konan hafa misst andann um stund, kastað upp þrisvar og fundið mjög mikið til.
Staðfesti karlmaðurinn sem reifst við Tarek um reykingar hans þessa lýsingu konunnar á árásinni við skýrslutöku hjá lögreglu. Annar karlmaður andmælti því og sagði Tarek saklausan vildi hann meina að konan og aðrir íbúar á dvalarstaðnum hefðu sýnt af sér kynþáttafordóma í garð Tarek. Þau hafi auðmýkt hann og líkað illa við múslima. Vildi maðurinn einnig meina að íbúarnir hafi sagt við Tarek að hann væri innflytjandi sem ætti að koma sér í burtu.
Fram kemur í dómnum að fyrir hafi legið læknisvottorð um áverka á konunni og heilahristinginn sem hún hlaut.
Fyrir dómi harðneitaði Tarek að hafa ráðist á konuna en sagði hana að fyrra bragði hafa togað í hann og þá hafi hann ýtt henni frá sér. Gat hann ekki gefið neinar skýringar á áverkum konunnar aðrar en þær að hún hefði slasast við vinnu sína en það hafi hún sagt við kærustu hans.
Konan stóð fast við sinn fyrri framburð fyrir dómi. Hún hefði fengið áfall og væri hrædd við Tarek. Hún neitaði því að hafa sagst hafa slasast við vinnu. Karlmaðurinn sem varð vitni að árásinni staðfesti fyrri framburð sinn en annað vitni sagði hann og konuna hafa verið árásargjörn í garð Tarek og karlmanninn ráðist á hann.
Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness vegna þessarar árásar segir að framburður vitnisins sem vilhallt var Tarek væri ekki trúverðugur þar sem hann væri í ósamræmi við framburð Tarek sem aldrei hafi sakað karlmanninn um að hafa ráðist á sig. Þar að auki lægi fyrir að þeir væru vinir. Læknisvottorðið staðfesti framburð konunnar og karlmannsins.
Var því Tarek sakfelldur fyrir þessa árás.
Þegar kom að árásinni í febrúar 2025 segir í dómnum að karlkyns þolandinn hafi verið nágranni Tarek. Konan sem reyndi að koma þolandanum til hjálpar hafi eins og áður kom fram verið kærasta Tarek en þau hafi bæði verið ölvuð. Tjáði konan lögreglu að hún hefði orðið fyrir höfuðhöggum frá Tarek en þau hafi verið ætluð karlmanninum.
Karlmaðurinn tjáði lögreglu að Tarek hefði komið inn í herbergi hans og ráðist á hann. Var hann fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og í kjölfarið Landspítalann.
Í læknisvottorði kom meðal annars fram að andlit mannsins hafi verið stokkbólgið og á tölvusneiðmynd hafi komið í ljós blæðing í höfði og eins áður kom fram brot í 7 rifjum og brot í öðru herðablaðinu. Kom fram í vottorðinu að áverkarnir samræmdust grófri líkamsárás með fjölda þungra högga á andlit, brjóstkassa, kvið og bak. Sagði enn fremur í vottorðinu að merkilegt væri að þolandinn hefði ekki hlotið alvarlegri áverka á innri líffærum.
Sömuleiðis lá fyrir vottorð um áverka á kærustu Tarek og sömuleiðis vottorð um áverka á honum sjálfum, meðal annars á höndum.
Í dómnum kemur fram að blóð hafi fundist víðsvegar í herbergi þolandans.
Þolandinn sagði í skýrslutöku hjá lögreglu að hann og Tarek hefði greint á um frágang þess síðarnefnda á salerni dvalarstaðarins og reykingar hans, þar sem þeir báðir bjuggu en ekki kemur fram hvort sé að ræða um sama stað og í fyrrnefnda málinu. Í kjölfarið hafi Tarek komið inn í herbergið og ráðist á hann. Sagðist maðurinn hafa óttast um líf sittt og hafa öskrað á hjálp.
Kærastan reyndi að draga úr alvarleika málsins í skýrslutöku hjá lögreglu en sagði þó að Tarek hefði slegið manninn með krepptum hnefa og hún hefði orðið fyrir höggi frá honum. Vinkona hennar hafði hins vegar aðra sögu að segja og sagði að umrætt kvöld hafði konan lýst miklum ótta við Tarek, sýnt sér kúlu eftir högg frá honum og sagst hafa óttast að Tarek hefði drepið manninn.
Önnur vitni tjáðu lögreglu að Tarek hefði oft sýnt af sér skapofsa. Tarek tjáði lögreglunni að maðurinn hefði ráðist á sig og í kjölfarið hafi brotist út átök á milli þeirra. Hann harðneitaði að hafa slegið kærustu sína.
Samkvæmt dómnum hefur Tarek setið í gæsluvarðhaldi frá því í febrúar 2025.
Fyrir dómi sagði kærastan meðal annars að hún hefði ekki reynt að verja manninn fyrir höggunum frá Tarek en vinkona hennar sagði hins vegar að hún hefði sagt hið gangstæða kvöldið sem árásin átti sér stað. Tarek og maðurinn gáfu sams konar framburði fyrir dómi og þeir gerðu hjá lögreglu.
Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness segir að framburður brotaþolans eigi sér stoð í framburði vitna og framburði kærustu Tarek hjá lögreglu en þar hafi hún sagt að hún hafi reynt að verja manninn fyrir höggum Tarek. Framburður hennar hafi verið annar fyrir dómi en læknisvottorð og framburður vinkonu hennar renni stoðum undir framburð hennar hjá lögreglu. Samkvæmt læknisvottorðum hafi áverkar mannsins verið miklir og að Tarek hafi einkum verið með áverka á höndum. Hann var því sakfelldur fyrir þessa árás.
Dómurinn sakfellir hann einnig fyrir líkamsárás á kærustuna með vísan til framburðs hennar hjá lögreglu, læknisvottorðs um áverkana sem hún hlaut og framburðar vinkonu hennar. Var Tarek jafnfram sakfelldur fyrir eignaspjöll á grundvelli framburðar þolandans og ljósmynda af vettvangi.
Þegar kemur að ákvörðun refsingar segir í dómnum að Tarek hafi ekki áður hlotið dóm á Íslandi en hafi hins vegar hlotið fjölda dóma í Austurríki, þar á meðal fyrir ofbeldisbrot. Í ljósi þessa og afleiðinga síðari árásarinnar þótti við hæfi að dæma hann í tveggja ára fangelsi en gæsluvarðhaldið sem hann hefur sætt síðan í febrúar dregst frá dómnum.
Dóminn í heild er hægt að lesa hér.