
Morgan Rogers hjá Aston Villa ku helst vilja ganga til liðs við Arsenal, fari hann frá félaginu í sumar.
Þetta herma sögur sem nú berast frá Englandi. Enski landsliðsmaðurinn hefur verið orðaður við Arsenal, Chelsea og fleiri félög eftir frábært tímabil með Villa.
Rogers kom að 17 mörkum í 37 leikjum í ensku úrvalsdeildinni og hjálpaði Villa að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, er sagður heillaður af fjölhæfni Rogers, sem getur leikið á kantinum og fremst á miðjunni.
Aston Villa vill þó ekki selja leikmanninn og er hann með samning til ársins 2031. Hann verður því rándýr, takist einhverju félagi að kaupa hann.