fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
433Sport

Líklega að ráða Keane til starfa og ræða við O’Neill um hlutverk hans

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 4. júní 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Celtic hefur átt jákvæðar viðræður við Robbie Keane um að taka við sem knattspyrnustjóri félagsins eftir að staða stjórans losnaði fyrr í sumar.

Samkvæmt Sky Sports eru frekari viðræður á dagskrá síðar í vikunni og Keane er talinn vera einn helsti kandídatinn í starfið. Írinn yfirgaf ungverska félagið Ferencváros á síðasta mánuði og er sagður áhugasamur um að taka við skoska stórliðinu.

Keane hefur þegar lagt fram hugmyndir um þjálfarateymi sitt ef hann fær starfið. Þar eru meðal annars nefndir Stephen Glass, Scott Brown og Jonny Hayes, sem allir hafa tengsl við skoskan fótbolta.

Getty Images

Á sama tíma mun stærsti hluthafi Celtic, Dermot Desmond, ræða við Martin O’Neill á næstu dögum. O’Neill hefur stýrt liðinu til bráðabirgða og félagið er opið fyrir því að bjóða honum skammtímasamning ef hann hefur áhuga á að halda áfram.

Ef O’Neill vill ekki starfið til frambúðar gæti honum verið boðið hlutverk innan knattspyrnudeildar félagsins eða ráðgjafastarf.

Craig Bellamy, landsliðsþjálfari Wales, er einnig á lista Celtic. Þrátt fyrir að hann hafi nýlega ítrekað skuldbindingu sína við velska landsliðið gæti Celtic reynt að sannfæra hann á næstu dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Tottenham með allar klær úti – Rosalegu tilboði hafnað og vilja kantmann City

Tottenham með allar klær úti – Rosalegu tilboði hafnað og vilja kantmann City
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

United frestar því að ræða við Bruno um nýjan samning

United frestar því að ræða við Bruno um nýjan samning
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Pierre Sage tekur við af Glasner

Pierre Sage tekur við af Glasner
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Segir sögusagnirnar tóma þvælu

Segir sögusagnirnar tóma þvælu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fyrirsætan vinsæla svíkur heimalandið í sumar eftir að hafa fundið ástina

Fyrirsætan vinsæla svíkur heimalandið í sumar eftir að hafa fundið ástina
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Reiðir City menn eftir fullyrðingar frá Madrid í gærkvöldi og hóta lögsókn

Reiðir City menn eftir fullyrðingar frá Madrid í gærkvöldi og hóta lögsókn
433Sport
Í gær

Mourinho samþykir fyrstu tvö kaup Real Madrid í sumar – Fleiri stórar ákvarðanir á borðinu

Mourinho samþykir fyrstu tvö kaup Real Madrid í sumar – Fleiri stórar ákvarðanir á borðinu
433Sport
Í gær

Þetta eru kærusturnar sem munu vekja athygli í Bandaríkjunum í sumar – Fá meiri tíma en áður með ástmönnum sínum

Þetta eru kærusturnar sem munu vekja athygli í Bandaríkjunum í sumar – Fá meiri tíma en áður með ástmönnum sínum