

Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, ætlar sér að fá tvo nýja miðjumenn til félagsins í sumar samkvæmt fréttum frá The Guardian.
United hefur þegar náð samkomulagi um kaup á brasilíska miðjumanninum Ederson frá Atalanta, en félagaskiptin eiga aðeins eftir að fara í gegnum læknisskoðun áður en þau verða staðfest opinberlega.
Búist er við að United reyni næst að kaupa Matheus Fernandes frá West Ham áður en stærstu kaupin á miðjuna fara í gang.
Þrátt fyrir komu Ederson er Carrick sagður vilja bæta öðrum miðjumanni við hópinn. Nokkur stór nöfn eru á óskalista félagsins, þar á meðal Aurélien Tchouaméni hjá Real Madrid, Carlos Baleba hjá Brighton, Adam Wharton hjá Crystal Palace og Elliot Anderson hjá Nottingham Forest.
Carrick telur miðjusvæðið vera lykilatriði í áframhaldandi uppbyggingu liðsins og vill auka bæði gæði og breidd í hópnum fyrir næsta tímabil.
Casemiro hefur yfirgefið félagið og þá vill United losna við Manuel Ugarte og bæta þremur miðjumönnum við.