
Atletico Madrid hefur áhuga á Marc Cucurella hjá Chelsea og hefur enska stórliðið sett á hann verðmiða upp á rúmar 60 milljónir punda.
Fréttir um það að Cucurella gæti snúið heim til Spánar brutust út á dögunum. Atletico vill hins vegar frekar greiða rúmar 40 milljónir punda fyrir Cucurella, sem á enn þrjú ár eftir af samningi sínum hjá Chelsea.
Cucurella átti erfitt uppdráttar fyrst eftir komuna frá Brighton árið 2022 en hefur síðan fest sig í sessi sem lykilmaður hjá Chelsea.
Diego Simeone, stjóri Atletico, er sagður mikill aðdáandi vinstri bakvarðarins.
Chelsea keypti Cucurella frá Brighton á upphæð sem gæti farið yfir 60 milljónir punda og sér enga ástæðu til að félagið ætti að tapa á þeim viðskiptum.