

Knattspyrnufélagið Valur og markvörðurinn Ögmundur Kristinsson hafa komist að samkomulagi um starfslok.
Ögmundur sem gekk til liðs við Val um mitt tímabil 2024 var samningsbundinn félaginu út tímabilið 2027.
Ögmundur sem lék alls 11 leiki í efstu deild fyrir Val er því laus allra mála.
Ögmundur er að ganga í raðir Víkings sem er að fá undanþágu til að fá inn markvörð vegna veikinda Ingvars Jónssonar.
Markvörðurinn knái var í landsliðshópi Íslands gegn Japan.