

Crystal Palace vinnur nú að því að finna eftirmann Oliver Glasner og samkvæmt nýjustu fréttum hefur áhugi félagsins á Pierre Sage aukist verulega.
Viðræður eru sagðar í gangi við Sage, sem stýrir nú franska liðinu Lens. Palace hefur rætt við nokkra kandídata undanfarna mánuði en Sage virðist nú vera einn af fremstu kostunum til að taka við liðinu.
Frakkinn hefur vakið mikla athygli fyrir störf sín hjá Lens. Á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn stýrði hann liðinu í annað sæti frönsku deildarinnar og vann einnig frönsku bikarkeppnina.
Andoni Iraola var upphaflega efsti kostur Crystal Palace í leitinni að nýjum stjóra, en Liverpool náði að semja við Spánverjann áður en Palace komst lengra í viðræðunum.
Aðrir stjórar sem hafa verið nefndir í tengslum við starfið eru Frank Lampard, Dino Toppmöller og Kieran McKenna.
Palace virðist þó nú beina sjónum sínum að Sage og næstu dagar gætu skorið úr um hvort hann taki við félaginu.