
FIFA hefur verið harðlega gagnrýnt eftir að ákveðið var að banna stuðningsmönnum að taka vatnsflöskur með sér inn á leikvanga á HM í sumar.
Áður hafði FIFA heimilað gegnsæjar fjölnota plastflöskur, allt að eins lítra að stærð, en þeirri hefur verið breytt aðeins viku fyrir mót.
FIFA segir breytinguna gerða af öryggisástæðum til að minnka hættu á því að hlutum verði kastað inn á völlinn.
Sérfræðingar í hitamálum segja ákvörðunina hins vegar geta skapað hættu fyrir stuðningsmenn þar sem mikill hiti er væntanlegur á mótinu.
„Þetta mun augljóslega auka hættuna á hitatengdum veikindum,“ sagði Ollie Jay, prófessor við Háskólann í Sydney.
FIFA segir að vatn verði selt á völlunum og að verð verði ekki hærra en venjulega á viðkomandi leikvöngum.
Stuðningsmannahópar hafa einnig gagnrýnt ákvörðunina og segja hana koma mjög seint fram, auk þess sem margir óttast að verið sé einfaldlega að reyna að græða meira á drykkjasölu á mótinu.