fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
433Sport

Óvænt samtal farið af stað í Kaplakrika – Skoða það með opnum hug að setja gervigras á völlinn

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 4. júní 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Farið er af stað samtal í Kaplakrika þess efnis um að setja gervigras á aðalvöll félagsins, fyrir nokkrum árum hefðu sú hugsun sennilega verið óhugsandi. Forráðamenn FH hafa í árana rás viljað halda náttúrulegu grasi á vellinum en annað hljóð er komið í strokkinn.

Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH staðfestir við 433.is að slíkar pælingar hafi verið ræddar en séu stutt á veg komnar.

„Það hefur komið til tals, við erum að leita leiða til að gera völlinn eins góðan og hægt er. Hvort sem það væri hybrid gras eða gervigras,“ segir Davíð Þór við 433.is en Brynjar Benediktsson fyrrum framherji FH sagði fyrst frá þessu í Dr. Football hlaðvarpinu.

Kaplakrikavöllur er einn af þremur grasvöllum efstu deildar en hinir vellirnir eru á Akranesi og Keflavík. Grasvellir landsins hafa komið illa undan vetri og er Kaplakriki ekki í góðu ástandi.

„Við erum opnir fyrir því að skoða það. Það þarf að eiga sér samtal við bæinn, það er ekki mikið samtal farið af stað. Það er verið að hugsa til framtíðar, lausnin er sú að vera ekki með völl sem er bara góður yfir há sumarið. Við erum að ströggla þegar veturinn er eins og hann var, núna er júní og völlurinn er ekki góður.“

Með því að setja gervigras á Kaplakrikavöll fengi liðið fljóðljós á svæðið og hægt væri að nýta völlinn allt árið auk þess betri notkun yrði á mannvirkinu í kringum völlinn.

Davíð Þór segir að á næstunni verði væntanlega farið í samtal við bæjaryfirvöld. „Við þurfum að finna út úr því með bænum að þetta verði sem best, nýtt þetta vel og ekki bara fyrir meistaraflokkana. Þetta verður rætt frekar á næstunni,“ sagði Davíð Þór.

FH lagði hybrid-gras á æfingasvæði sitt sem hefur gefist ágætlega, eigi það hins vegar að verði á keppnisvelli er ljóst að kostnaðurinn gæti orðið ansi mikill. Kaupa þarf nokkuð dýran búnað sem ekki þarf á gervigrasvöll.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Tottenham með allar klær úti – Rosalegu tilboði hafnað og vilja kantmann City

Tottenham með allar klær úti – Rosalegu tilboði hafnað og vilja kantmann City
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

United frestar því að ræða við Bruno um nýjan samning

United frestar því að ræða við Bruno um nýjan samning
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Segir sögusagnirnar tóma þvælu

Segir sögusagnirnar tóma þvælu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Sjö leikmenn sem Iraola gæti verið klár í að selja frá Liverpool

Sjö leikmenn sem Iraola gæti verið klár í að selja frá Liverpool
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fyrirsætan vinsæla svíkur heimalandið í sumar eftir að hafa fundið ástina

Fyrirsætan vinsæla svíkur heimalandið í sumar eftir að hafa fundið ástina
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Reiðir City menn eftir fullyrðingar frá Madrid í gærkvöldi og hóta lögsókn

Reiðir City menn eftir fullyrðingar frá Madrid í gærkvöldi og hóta lögsókn
433Sport
Í gær

Mourinho samþykir fyrstu tvö kaup Real Madrid í sumar – Fleiri stórar ákvarðanir á borðinu

Mourinho samþykir fyrstu tvö kaup Real Madrid í sumar – Fleiri stórar ákvarðanir á borðinu
433Sport
Í gær

Þetta eru kærusturnar sem munu vekja athygli í Bandaríkjunum í sumar – Fá meiri tíma en áður með ástmönnum sínum

Þetta eru kærusturnar sem munu vekja athygli í Bandaríkjunum í sumar – Fá meiri tíma en áður með ástmönnum sínum