

Sara Björk Gunnarsdóttir verður kynnt til leiks sem leikmaður Hauka á morgun. Félagið hefur boðað til kynningarfundar klukkan 15:00.
Samkvæmt heimildum 433.is var Sara Björk einnig í viðræðum við Breiðablik, félagið taldi sig hins vegar ekki geta keppt við Hauka um launapakka og bakkaði út.
Haukar sem er uppeldisfélag Söru leikur í Lengjudeildinni á meðan Breiðablik eru Íslandsmeistarar.
Talað hefur veirð um að Sara þéni um og yfir milljón á mánuði hjá Haukum og segir heimildarmaður 433.is að hún verði líklega launahæsti leikmaður í sögu kvennafótboltans á Íslandi.
Sara er 35 ára gömul en hún kemur til félagsins frá Al Qadsiah í Sádí Arabíu, þar var hún í tvö ár. Sara er að koma heim eftir fimmtán ár í atvinnumennsku en hún fór frá Breiðablik undir lok árs 2010. Sara hefur átt magnaðan feril og lék meðal annars með Wolfsburg, Lyon og Juventus.
Sara er ein allra besta knattspyrnukona í sögu Íslands og ljóst að það er mikill styrkur fyrir Hauka að fá hana inn í félagið.