fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
433Sport

Sást í fyrsta sinn opinberlega eftir veikindi – Virðist við góða heilsu

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 4. júní 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, hefur sést opinberlega í fyrsta sinn eftir að hafa lent í heilsufarsvandræðum fyrir leik Manchester United og Liverpool í síðasta mánuði.

Ferguson, sem er 84 ára gamall, var fluttur á sjúkrahús skömmu fyrir stórleikinn og vakti það áhyggjur meðal stuðningsmanna um allan heim. Nokkrum vikum síðar missti hann einnig af verðlaunahátíð LMA-samtakanna, sem jók enn frekar vangaveltur um heilsu hans.

Nú hafa þó birst myndir af Skotanum þar sem hann brosir á veitingastað í Wilmslow, skammt frá Manchester. Ferguson stillti sér upp með stuðningsmanni sem birti myndina á samfélagsmiðlum og sagði stundina hafa verið ógleymanlega.

„Ég var ekki skjálfandi af því að ég hitti fótboltagoðsögn heldur mann sem hafði gríðarleg áhrif á feril fyrirmyndarinnar minnar, Cristiano Ronaldo,“ skrifaði stuðningsmaðurinn.

Myndin vakti mikla athygli meðal stuðningsmanna Manchester United sem fögnuðu því að sjá Ferguson við góða heilsu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Tottenham með allar klær úti – Rosalegu tilboði hafnað og vilja kantmann City

Tottenham með allar klær úti – Rosalegu tilboði hafnað og vilja kantmann City
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

United frestar því að ræða við Bruno um nýjan samning

United frestar því að ræða við Bruno um nýjan samning
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Segir sögusagnirnar tóma þvælu

Segir sögusagnirnar tóma þvælu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Sjö leikmenn sem Iraola gæti verið klár í að selja frá Liverpool

Sjö leikmenn sem Iraola gæti verið klár í að selja frá Liverpool
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fyrirsætan vinsæla svíkur heimalandið í sumar eftir að hafa fundið ástina

Fyrirsætan vinsæla svíkur heimalandið í sumar eftir að hafa fundið ástina
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Reiðir City menn eftir fullyrðingar frá Madrid í gærkvöldi og hóta lögsókn

Reiðir City menn eftir fullyrðingar frá Madrid í gærkvöldi og hóta lögsókn
433Sport
Í gær

Mourinho samþykir fyrstu tvö kaup Real Madrid í sumar – Fleiri stórar ákvarðanir á borðinu

Mourinho samþykir fyrstu tvö kaup Real Madrid í sumar – Fleiri stórar ákvarðanir á borðinu
433Sport
Í gær

Þetta eru kærusturnar sem munu vekja athygli í Bandaríkjunum í sumar – Fá meiri tíma en áður með ástmönnum sínum

Þetta eru kærusturnar sem munu vekja athygli í Bandaríkjunum í sumar – Fá meiri tíma en áður með ástmönnum sínum