

Manchester United hefur ákveðið að fresta viðræðum um nýjan samning við fyrirliðann Bruno Fernandes samkvæmt fréttum á Englandi.
Fernandes, sem er 31 árs gamall og lykilmaður hjá United, er sagður hafa fullvissað forráðamenn félagsins um að hann vilji vera áfram á Old Trafford til lengri tíma. Af þeim sökum telja stjórnendur félagsins ekki vera neina sérstaka pressu á að ganga frá nýjum samningi strax.
Portúgalski miðjumaðurinn hefur verið einn mikilvægasti leikmaður United síðan hann kom til félagsins árið 2020. Hann hefur borið fyrirliðabandið undanfarin tímabil og verið meðal fremstu leikmanna liðsins bæði hvað varðar mörk og stoðsendingar.
Þrátt fyrir að samningaviðræðum hafi verið slegið á frest er ekki talið að það sé merki um óvissu um framtíð hans. Þvert á móti eru báðir aðilar sagðir rólegir yfir stöðunni og sannfærðir um að Fernandes verði áfram lykilmaður í uppbyggingu félagsins næstu árin.
Manchester United lítur því á framtíð fyrirliðans sem tryggða í bili.