
Aserska félagið Turan Tovuz hefur staðfest að það muni áfrýja ákvörðun UEFA eftir að félaginu var bannað að taka þátt í Sambandsdeildinni á næstu leiktíð.
UEFA refsaði félaginu vegna gamals mútumáls frá árinu 2019 þar sem sjö leikmenn voru bannaðir af aserska knattspyrnusambandinu.
Turan Tovuz segist ætla að fara með málið fyrir Alþjóðaíþróttadómstólinn (CAS) og grípa til allra lagalegra úrræða til að fá banninu hnekkt.
Félagið ætlar þó áfram að undirbúa sig með það í huga að fara í Evrópukeppni og fer í æfingabúðir í Tyrklandi síðar í mánuðinum.
Ákvörðunin gæti opnað á Evrópusæti fyrir annað aserskt félag, Zira, sem endaði í fimmta sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
Talsmaður Zira sagði félagið þó ekki hafa fengið neinar opinberar upplýsingar frá UEFA eða knattspyrnusambandinu um málið enn sem komið er.