

Manchester United ætlar sér stórt sumar á leikmannamarkaðnum og hefur sett Elliot Anderson í forgang í leit að styrkingu á miðsvæðinu. Guardian fjallar um málið.
United telur sig eiga raunhæfa möguleika á að vinna kapphlaupið við Manchester City um leikmanninn, sem er metinn á um 100 milljónir punda af Nottingham Forest. City hefur þegar fengið tilboð upp á 80 milljónir punda hafnað.
Anderson, sem gæti byrjað fyrsta leik England á HM, er talinn tilbúinn að skoða tilboð og United trúir því að hægt sé að sannfæra hann um að velja Old Trafford.
Félagið hefur þegar tryggt sér Ederson frá Atalanta og vinnur einnig að því að fá Mateus Fernandes, þó verðmiðinn gæti reynst vandamál.
Jim Ratcliffe vill halda aftur af kostnaði en er tilbúinn að mæta launakröfum Anderson.
Á sama tíma er Casemiro á leið frá félaginu, sem eykur þörfina á styrkingu. United virðist því ákveðið í að endurnýja miðjuna fyrir næsta tímabil.