
Það eru margir sem dreyma um að hafa enga nágranna, þurfa aldrei að festast í umferð og finna ekki fyrir neinu stressi. Dyrnar að slíku lífi eru opnar á morgun, þriðjudag, þegar eyjan Mullagrach fyrir utan ströndum Skotlands, ásamt sumarbústað, fer á uppboð hjá Savills.
Um er að ræða 36 hektara eyju í Sumareyjaklasanum, rúmlega hálftíma tekur að sigla til meginlandsins. Sumarbústaðurinn er lítill en umhverfisvænn, þar er borðkrókur með útsýni, tvö svefnpláss, sólarrafhlöðum, regnvatnssöfnunarkerfi og moltusalerni. Það þarf þó að taka með sér vatn.

„Við sjáum mikla eftirspurn eftir einstökum eignum á uppboðum. Einkaeyjar hafa oft sérstakt aðdráttarafl,” sagði Mhairi Archibald hjá Savills, við þýska dagblaðið Bild:
„Vegna stærðar sinnar, staðsetningar og þess að þar er þegar til staðar íbúðarhæft húsnæði gerum við ráð fyrir miklum áhuga á sölu Mullagrach-eyju jafnvel áður en uppboðið fer fram.“
Leiðbeinandi verð er 350 þúsund pund eða 57,8 milljónir króna.