fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fókus

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið

Fókus
Mánudaginn 8. júní 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það kannastkannski einhver pör við spurninguna: „Jæja elskan, er það Netflix, Disney+ eða Prime í kvöld?“ en að mati sálfræðingsins Mark Travers þarf þetta ekki að vera svona. Travers er sérfræðingur í samböndum og deilir nú með CNBC fimm hlutum sem hamingjusöm pör gera á kvöldin í staðinn fyrir að horfa á sjónvarpið.

Travers tekur fram að pör í dag eigi það til að fara á sjálfsstýringu. Vinna, heim, kvöldmatur, heimilisstörf og svo sófinn og sjónvarpið. Það er í sjálfu sér ekkert athugavert við þetta enda eðlilegt að slaka á eftir dagsverkin.

„En sem sálfræðingur sem rannsakar pör hef ég komist að því að mörg pör þyrstir í gæðastundir saman og helgarnar virðast oft vera eina tækifærið fyrir pör til að tengjast.“

Eigi þarf þó að örvænta því að Travers deilir fimm hlutum sem pör geta gert í hversdeginum, annað en að gerast sófakartöflur við imbakassann, en Travers segir að svona sé líka hægt að styrkja sambandið.

1 Stutt gönguferð eða fjallaganga

Hvað með að skella sér í göngutúr í 40 mínútur í staðinn fyrir að horfa á jafnlangan sjónvarpsþátt? Travers bendir á að þetta sé tækifæri til að fá sér smá ferskt loft og hreyfingu en einnig séu göngutúrar til þess fallnir að draga úr streitu og auka almenna vellíðan. Rannsóknir bendi líka til þess að rólegar gönguferðir geti hvatt til félagslegra samskipta og tengslamyndunar.

„Án skjásins sem keppir um athygli ykkar er auðveldara að vera líkamlega og tilfinningalega til staðar hvort fyrir annað.“

2 Að elda eða baka saman

Travers tekur fram að með þessu móti sé hægt að breyta einhverju hversdagslegu í skemmtilegt samvinnuverkefni. Enn betra sé að baka eða elda eitthvað sem þið hafið ekki smakkað áður.

„Ég hef alltaf verið heillaður af hugmyndinni um að tengjast í gegnum lærdóm og að óhreinka eldhúsið saman. Rannsóknir benda til þess að það að útbúa mat saman ýti náttúrlega undir teymisvinnu og traust og skapi um leið tækifæri fyrir líkamlega snertingu og samvinnu sem oft á til að glatast í amstri dagsins.“

Eldamennskan krefst þess að pör eigi samskipti sín á milli, en það gerir sjónvarpið ekki.

3 Spila

Travers tekur fram að hlutirnir þurfi ekki alltaf að vera flóknir. Stundum sé nóg fyrir pör að hlæja saman.

„Hvort sem það er spilastokkur, borðspil, púsl eða tölvuleikir þá geta tveggja manna spil fullnægt sömu afþreyingarþörfinni og sjónvarpið gerir en um leið boðið upp á mun meiri samskipti.“

Spil geta líka skapað sameiginlega upplifun. Spil snúast um stríðni, samkeppni, herkænsku og jafnvel spuna. Allt eru þetta atriði sem geta hjálpað pörum að slökkva á sjálfstýringunni sem langtímasambönd eiga til að festast í.

„Þetta er sérstaklega tilvalið fyrir pör sem hafa gaman af smá stríðnislegri samkeppni. Ef þú og maki þinn getið tapað í spilum án þess að verða bitur og hlegið saman í leiðinni þá er það gott merki um heilbrigt samband.“

4 Danskennsla

Travers mælir með því að pör dansi saman. Til dæmis sé hægt að skrá sig á dansnámskeið en einnig sé hægt að dansa bara saman heima en hægt er að finna alls konar kennslumyndbönd á netinu. Dansinn er leikur þar sem er hægt að daðra og hreyfa sig saman í hversdeginum.

„Það er vitað að dansinn er frábær líkamsrækt en fyrir pör felur dansinn í sér takt, nánd og nýbreytni. Rannsóknir benda til þess að samstillt ástríðan sem felst í dansi – að njóta athafnar einungis ánægjunnar vegna, frekar en fullkomnunar – sé í jákvæðum tengslum við hamingju í samböndum.“

Að mati Travers er það mikilvægasta við dansinn að þar fá pör útrás fyrir galsa sem sé miklu betra en að hanga saman, hlið við hlið, á sófanum við sjónvarpið.

5 Listir og handverk

Travers mælir með því að pör taki sér tíma í að vera skapandi saman. Það sé hægt að prjóna, hekla, teikna, leira og margt annað. Markmiðið er ekki að vera fullkominn enda nóg um slíkt í hefðbundnu lífi fullorðins fólks. Hér er markmiðið að hleypa barninu innra með sér lausu, skapa eitthvað saman og kannski kynnast nýjum hliðum á hvort öðru.

„Í ljósi þess hversu mikið af lífi fullorðinna snýst um framleiðni og rútínu getur smá barnsleg undrun gert ótrúlega mikið. “

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Steven Seagal mættur aftur í sviðsljósið í Rússlandi

Steven Seagal mættur aftur í sviðsljósið í Rússlandi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leikarinn James Handy látinn eftir hnífaárás

Leikarinn James Handy látinn eftir hnífaárás
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ótrúlegir hlutir gerðust eftir að myndband af 85 ára konu fór í dreifingu

Ótrúlegir hlutir gerðust eftir að myndband af 85 ára konu fór í dreifingu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan lýsir því hvernig hjónabandi hennar lauk á fundi með lækni – „Þessu lauk bara þarna inni í herberginu“

Leikkonan lýsir því hvernig hjónabandi hennar lauk á fundi með lækni – „Þessu lauk bara þarna inni í herberginu“