fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
433Sport

Lést aðeins 27 ára gamall eftir tæplega tíu ára baráttu við hvítblæði

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 8. júní 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnuheimurinn syrgir nú Anthony Renton, fyrrverandi leikmann Middlesbrough, sem er látinn aðeins 27 ára að aldri eftir langa og erfiða baráttu við hvítblæði.

Renton lést friðsamlega um helgina eftir nærri níu ára baráttu við sjúkdóminn. Middlesbrough staðfesti fregnirnar í tilfinningaþrunginni yfirlýsingu þar sem félagið minntist hans sem einstaklega jákvæðrar og hvetjandi manneskju.

Renton var efnilegur varnarmaður og hafði nýverið skrifað undir sinn fyrsta atvinnumannasamning hjá Middlesbrough þegar hann greindist með hvítblæði sumarið 2017, aðeins 18 ára gamall.

Þrátt fyrir fjölmörg áföll og erfiðar meðferðir lét hann sjúkdóminn aldrei taka frá sér ástina á knattspyrnunni. Eftir að leikferlinum lauk sneri hann sér að þjálfun og starfaði meðal annars hjá akademíu Middlesbrough þar sem hann hjálpaði ungum leikmönnum að þróast bæði innan vallar og utan.

Félagið sagði að áhrif hans á unga knattspyrnumenn og fjölskyldur þeirra á Teesside-svæðinu yrðu seint gleymd. Framlag hans var viðurkennt fyrr á þessu ári þegar hann varð fyrsti handhafi sérstakra Alumni-verðlauna akademíu félagsins.

Þegar Renton greindist árið 2017 sýndu leikmenn Middlesbrough honum mikinn stuðning og hituðu meðal annars upp fyrir deildarleik í treyjum merktum nafni hans.

Hann starfaði einnig með unglingaliðum South Park Rangers og lét eftir sig varanleg spor í ensku knattspyrnusamfélagi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

City vill klára kaupin sem fyrst – Má fara í læknisskoðun þó HM sé í gangi

City vill klára kaupin sem fyrst – Má fara í læknisskoðun þó HM sé í gangi
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum
Origi kallar þetta gott
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gylfi Þór tjáir sig um umdeildan borða

Gylfi Þór tjáir sig um umdeildan borða
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Myndband: Stelpurnar okkar fóru á kostum í umferðinni – „Fólk er farið að flauta, slakiði á“

Myndband: Stelpurnar okkar fóru á kostum í umferðinni – „Fólk er farið að flauta, slakiði á“