fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
433Sport

Eriksen líklega útskrifaður fljótlega

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 8. júní 2026 10:05

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Christian Eriksen er við fína heilsu þrátt fyrir að hafa hnigið niður í vináttuleik Danmerkur gegn Úkraínu í gær.

Leikurinn, sem fram fór í Odense, var stöðvaður á 65. mínútu eftir atvikið en Eriksen komst síðar til meðvitundar og gekk sjálfur af velli og upp í sjúkrabíl. Leikurinn var þó flautaður af.

Morten Boesen, landsliðslæknir Dana, sagði að Eriksen væri í góðum gír og líklega yrði hann útskrifaður af sjúkrahúsi fljótlega.

„Ég ræddi við Christian í morgun. Honum líður vel og hann er hjá fjölskyldunni,“ sagði Boesen.

Eriksen fékk ígræddan bjargráð eftir hjartastopp sitt á EM árið 2021 í leik gegn Finnlandi.

Tækið gerði honum kleift að hefja ferilinn á ný með Brentford árið 2022 áður en hann fór til Manchester United.

Ekki er vitað hvert framhaldið á knattspyrnuferli Eriksen verður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Eftirsóttur leikmaður í enska boltann

Eftirsóttur leikmaður í enska boltann
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Sækir Óskar fyrrum lærisvein í Vesturbæinn?

Sækir Óskar fyrrum lærisvein í Vesturbæinn?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Shakira, Katy Perry og Michael Bublé stíga á svið

Shakira, Katy Perry og Michael Bublé stíga á svið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sara Björk ræðir lífið í Sádí og segir frá aðstæðum liðsfélaganna – „Kannski að spila fótbolta án þess að fjölskylda þeirra samþykki það“

Sara Björk ræðir lífið í Sádí og segir frá aðstæðum liðsfélaganna – „Kannski að spila fótbolta án þess að fjölskylda þeirra samþykki það“