
Manchester City ætlar sér að klára kaup á Elliot Anderson eins fljótt og mögulegt er þrátt fyrir að fyrsta tilboði félagsins hafi verið hafnað af Nottingham Forest.
Forest vill samkvæmt fréttum fá um 100 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn, en City telur raunhæfara verð vera nær 80 milljónum.
Fabrizio Romano segir City þó ekki hafa neinn áhuga á að gefast upp og félagið vilji klára samninginn áður en undirbúningstímabilið hefst í júlí.
Anderson hefur jafnframt samkvæmt fréttum gefið grænt ljós á félagaskipti til City þrátt fyrir áhuga Manchester United.
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, er meira að segja til í að leyfa miðjumanninum að fara í læknisskoðun hjá City á meðan HM stendur yfir.