
Fyrsta tilboði Manchester City í Elliot Anderson var hafnað af Nottingham Forest en viðræður félaganna halda áfram. Frá þessu greina helstu miðlar.
Anderson, sem er með enska landsliðinu í æfingabúðum í Flórída fyrir HM, er sagður tilbúinn að ganga til liðs við City frekar en Manchester United, sem hann hefur einnig verið orðaður við.
Helsta hindrunin í viðræðunum er eigandi Forest, Evangelos Marinakis, sem vill fá meira en 100 milljónir punda fyrir miðjumanninn.
Anderson er 23 ára gamall og á þrjú ár eftir af samningi sínum við Forest.
Hann kom til félagsins frá Newcastle fyrir 35 milljónir punda og hefur síðan leikið 92 leiki fyrir Forest og staðið sig afar vel.
Elliot Anderson er mjög ofarlega á óskalista Enzo Maresca, sem er að taka við Manchester City af Pep Guardiola.