
Jordan Pickford kveðst fyllilega til í að taka vítaspyrnu fyrir England á HM ef þess þarf.
„Ég myndi treysta mér hundrað prósent í að taka víti,“ sagði markvörðurinn í viðtali í æfingabúðum enska landsliðsins í Flórída.
Pickford hefur áður skorað úr vítaspyrnu fyrir England þegar liðið vann Sviss í vítaspyrnukeppni í Þjóðadeildinni árið 2019.
Markvörðurinn segir enska liðið ætla að búa sig vel undir mögulegar vítaspyrnukeppnir á mótinu.
„Við byrjum fljótlega að vinna sérstaklega í því. Undirbúningur skiptir öllu máli,“ sagði Pickford.
Hann segir enska liðið hafa skýrt markmið fyrir mótið.
„Ég sagði við fjölskylduna mína að ég yrði í burtu í sjö vikur, en þetta gæti breytt lífi okkar allra. Markmiðið er að vinna HM.“
England leikur við Króatíu, Gana og Panama í riðlakeppni HM.