fbpx
Fimmtudagur 04.júní 2026
433Sport

Blaðamaður Morgunblaðsins óttast mjög þessar breytingar – „Það fylgir því allt önnur pressa“

433
Fimmtudaginn 4. júní 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Helgason, stjörnublaðamaður Morgunblaðsins og stuðningsmaður Liverpool óttast þær breytingar sem eru að eiga sér stað á Anfield.

Arne Slot var rekinn úr starfi á laugardag og er félagið nú að ganga frá ráðningu á Andoni Iraola frá Bournemouth.

Iraola hefur gert vel með Bournemouth en Bjarni hræðist þetta skref. „Ég var vissulega kominn með nóg af Arne Slot og var sjálfur búinn að kalla eftir þjálfarabreytingum á Anfield eftir allt of algenga hörmungarframmistöðu á nýliðnu tímabili,“ skrifar Bjarni í Morgunblað dagsins.

Hann segir söguna ekki í liði með Iraola. „Sagan og tölfræðin er hins vegar ekki beint með Iraola í liði, allavega ekki ef við horfum til stjóra sem hafa tekið skrefið frá minna félagi yfir í stærra í ensku úrvalsdeildinni í seinni tíð.“

„Thomas Frank færði sig yfir til Tottenham frá Brentford og var rekinn. Graham Potter fór frá Brighton til Chelsea og var rekinn. David Moyes tók við Manchester United eftir að hafa stýrt Everton og var rekinn. Roy Hodgson tók við Liverpool eftir að hafa stýrt Fulham og var rekinn.“

Bjarni segir að aðrir stjórar hafi gert þetta en óttast að Iraola höndli ekki starfið á Anfield. „Það fylgir því allt önnur pressa að stýra einu af stærstu liðum Bretlandseyja samanborið við eitthvert miðlungslið í úrvalsdeildinni. Pressa sem margir stjórar virðast eiga erfitt með að höndla.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Tottenham með allar klær úti – Rosalegu tilboði hafnað og vilja kantmann City

Tottenham með allar klær úti – Rosalegu tilboði hafnað og vilja kantmann City
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

United frestar því að ræða við Bruno um nýjan samning

United frestar því að ræða við Bruno um nýjan samning
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Pierre Sage tekur við af Glasner

Pierre Sage tekur við af Glasner
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Segir sögusagnirnar tóma þvælu

Segir sögusagnirnar tóma þvælu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Fyrirsætan vinsæla svíkur heimalandið í sumar eftir að hafa fundið ástina

Fyrirsætan vinsæla svíkur heimalandið í sumar eftir að hafa fundið ástina
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Reiðir City menn eftir fullyrðingar frá Madrid í gærkvöldi og hóta lögsókn

Reiðir City menn eftir fullyrðingar frá Madrid í gærkvöldi og hóta lögsókn
433Sport
Í gær

Mourinho samþykir fyrstu tvö kaup Real Madrid í sumar – Fleiri stórar ákvarðanir á borðinu

Mourinho samþykir fyrstu tvö kaup Real Madrid í sumar – Fleiri stórar ákvarðanir á borðinu
433Sport
Í gær

Þetta eru kærusturnar sem munu vekja athygli í Bandaríkjunum í sumar – Fá meiri tíma en áður með ástmönnum sínum

Þetta eru kærusturnar sem munu vekja athygli í Bandaríkjunum í sumar – Fá meiri tíma en áður með ástmönnum sínum