
Kári Kristjánsson er genginn í raðir Þróttar R. á nýjan leik frá FH, samkvæmt Dr. Football.
Kári gekk í raðir FH í vetur eftir að hafa verið algjör lykilmaður fyrir Þrótt í Lengjudeildinni.
Undanfarið hefur hann verið orðaður við endurkomu í Laugardalinn og samkvæmt Dr. Football eru skiptin til baka frágengin.
Kári hefur komið við sögu í fjórum af fyrstu fimm leikjum FH í Bestu deildinni, þar af hefur hann byrjað tvo þeirra.
Kári Kristjansson er kominn aftur í Þrótt frá FH.
— Dr. Football Podcast (@drfootballpod) May 5, 2026