Kwateng kom hingað til Íslands 2017 frá Gana og sótti þá um alþjóðlega vernd. Um miðjan október var honum síðan vísað úr landi eftir sex ára bið og óvissu hér á landi. Nú er atvinnu- og dvalarleyfi hins vegar í höfn og því má búast við að Isaac flytji aftur til Íslands á næstu dögum.
Kwateng flúði heimaland sitt, Gana, og kom til Íslands en ráðist hafði verið á hann eftir að hann predikaði gegn samkynhneigð. Hann sagði í samtali við Heimildina að hann hafi snúið baki við þessum skoðunum.
„Ég var alinn upp af kristnum foreldrum með viðhorf sem eru mjög ólík þeim evrópsku,“ segir hann.
„Eftir að ég kom til Íslands þroskaðist ég og byrjaði að skilja ýmislegt betur. Það breytti mér.
Ég hef ekkert á móti samkynhneigðum, ég vil að allir fái að lifa sínu lífi eins og þeir vilja.
Ef þú ert samkynhneigður, þá er það þitt líf og þú átt að gera það sem gerir þig hamingjusaman eða hamingjusama. Ég er ekki á móti neinum. Allir vilja vera hamingjusamir og ég er ekki á móti því.“