fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Þorsteini var brugðið þegar bandarískur vinur hans sendi honum tvær greinar um konur

Ritstjórn DV
Mánudaginn 8. júní 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteini Sigurlaugssyni, áhugamanni um mannréttindi, var brugðið nýlega þegar hann fékk tvær greinar sendar frá bandarískum vini sínum. Umræddur vinur er hámenntaður fræðimaður, fyrrum prófessor og frjálslyndur en Þorsteinn telur að málið sýni hvernig öfgahugmyndir um stöðu og réttindi kvenna hafa ratað úr jaðri internetsins yfir í meginstrauminn. Þorsteinn lýsir þessari reynslu sinni í grein hjá Vísi þar sem hann spyr lesendur: Veistu hvað „foid“ er?“

Foid er slangur og stytting á orðinu femoid sem að sama bragði er blanda af orðunum female og humanoid. Orðið á rætur að rekja til spjallsvæða á netinu og er notað til að afmennska konur með því að gefa til kynna að þær séu ekki fullgildar manneskjur heldur kvenkyns manngervlar. Orðið þykir mjög niðrandi og hatursfullt í garð kvenna. Orðið var einkum notað á spjallsvæðum sjálftitlaðra kynsveltra karlmanna (incels) en hefur nú ratað í almenna umræðu.

Óhamingjusamar konur og ógiftir menn

Greinarnar tvær sem vinur Þorsteins sendi fjölluðu báðar um það hvernig aukin réttindi kvenna hafi haft neikvæð áhrif á samfélagið. Önnur greinin fullyrti að konur væru sífellt að verða óhamingjusamari vegna þess að þær hefðu hafnað náttúrulegu hlutverki sínu sem væri „að vera undirgefnar eiginkonur; barnaverksmiðjur og kynlífsviðföng karlmanna“. Hin greinin setur minni atvinnuþátttöku karlmanna í samhengi við færri hjónabönd. Ógiftir menn séu latari til vinnu en giftir og að færri menn nenni að gifta sig í dag því konur séu orðnar svo erfiðar.

„Giftingum fækki vegna þess að konur séu ömurlegar, geðbilaðar, taugaveiklaðar, vinstrisinnaðar, hafni venjulegum karlmönnum, og séu að taka yfir bæði stjórn ríkisins og fræðasamfélagið og leggja hvort tveggja í rúst. Rótarorsökin að baki þessu sé baráttan fyrir auknu frelsi kvenna,“ segir Þorsteinn sem bendir á að sér hafi brugðið þegar hann áttaði sig á því að vinur hans var að senda honum greinarnar í fullri alvöru og velti því virkilega fyrir sér hvort greinarnar ættu við rök að styðjast.

Þorsteinn vísar í bók eftir Lauru Bates sem rekur bakslag í jafnréttisbaráttunni til hreyfinga karlmanna. Þetta eru hreyfingar á borð við kynsvelta karlmenn, eða incels, sem hata konur því þær vilja þá ekki, MGTOW-hreyfinguna sem hafnar alfarið samskiptum við konur og svo hreyfingar tælingameistara (e. pick-up artists) og karlréttindahreyfingarinnar (e. Mens Right Movement) sem telja karlmenn fórnarlömb í kynjastríði. Bates rekur í bók sinni, Karlar sem hata konur, að þessar hreyfingar liggi að baki fjölmörgum fjöldamorðum og hvernig hreyfingarnar hafa ratað inn í meginstraum stjórnmálanna.

„Og hún fjallar um hvernig þær ná fótfestu í huga venjulegra, frjálslyndra karlmanna, eins og fyrrnefnds vinar míns.“

Orðið foid sé notað til að afmennska konur. Sumir réttlæti fjöldamorð sem byggja á kvenhaturshreyfingum með vísan til þess að konum beri skylda til að þjónusta karlmenn kynferðislega svo þeir grípi ekki til slíkra örþrifaráða. Telur Þorsteinn að röksemdir Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar fyrir lögleiðingu vændis séu af svipuðum toga en Hannes sagði á bókakvöldi Spurmála nýlega:

„Síðan kom ég með ein mannúðarrök fyrir vændi. Það var fyrir það sem ég var kærður. Það var að það væru til hópar í þjóðfélaginu sem ekki gætu útvegað sér rekkjunauta eftir frjálsu vali. Það væri til dæmis fólk sem að þjáðist af offitu eða væri með líkamslýti eða væri mjög ófrýnilegt ásýndum. Og eina leiðin fyrir það fólk til þess að útvega sér kynlíf er að greiða fyrir það. Þannig að þetta voru mannúðarrökin fyrir vændi. Og ég var kærður fyrir fitufordóma hérna og ég get bara ekki, ég get engu, engu bætt við þetta.“

Byrjar sem sakleysisleg umræða

Þorsteinn segir að öfgahugmyndir séu sífellt að rata hraðar í meginstraum hugarfars og stjórnmála. Fyrst birtist þær sem sakleysisleg umræða um að þjóðin, þá helst fólk af réttum uppruna, eignist fleiri börn. Á bak við þetta liggi rasísk hugmynd um hreinleika kynstofnsins og náttúrulegt hlutverk konunnar. Síðan koma kröfur um bann við þungunarrofi, við hjónaböndum hinsegin fólks og jafnvel afnám refsinga við kynbundnu ofbeldi eða afnám kosningaréttar kvenna. Þetta grípur Þorsteinn ekki úr lausu lofti en undanfarna daga hefur lífleg umræða átt sér stað í bandaríska kima miðilsins X um skyldur giftra kvenna til að sofa hjá eiginmönnum sínum, hvort sem þær vilja það eða ekki og í íslenskum hluta miðilsins er þegar farið að bera á umræðu um kosningarétt kvenna.

Nefnir Þorsteinn svo aðra bók sem nefnist Bodies Under Siege eftir breska blaðamanninn Sian Norris, en þar er rakið  hvernig hreyfingar sem ala á kvenhatri og andfeminisma tengjast kynþáttahatri og fasisma.Telur Þorsteinn það skyldu þeirra sem láti sig frelsi, mannréttindi og lýðræði varna að takast á við þessa vaxandi ógn.

„Fyrsta skrefið er að skilja mynstrin og þar er vinna feminískra greinenda á borð við Lauru Bates og Sian Norris lykilatriði. Það er þeim að þakka að ég áttaði mig strax á því hvað hafði komið fyrir vin minn sem ég gat um í upphafi.“

Má þá einnig minna á ungmennaþing Barnaheilla sem fór nýlega fram í Hafnarfirði um kynferðisofbeldi í nánum samböndum en þar greindu ungmenni frá bakslagi í jafnréttisbaráttunni. Stúlkur væru að fá þau skilaboð að þær eigi að vera kvenlegar, heimavinnandi og setja sjálfar sig í annað sætið. Strákar eigi að vera sterkir og góð fyrirvinna. Konur eigi að vera undirgefnar, sjá um heimili og börn en strákar eigi að sjá um bílinn og græða peninga. Ungmennin lýsti því að þessar hugmyndir væru að lauma sér inn í samskipti og sambönd ungmenna smátt og smátt.

Sjá einnig: Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segist hafa fengið áreiðanlegar upplýsingar um að Sindri sé í varðhaldi í Taílandi

Segist hafa fengið áreiðanlegar upplýsingar um að Sindri sé í varðhaldi í Taílandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fasteignasali segir fyrstu kaup sjaldan hafa verið aðgengilegri en nú

Fasteignasali segir fyrstu kaup sjaldan hafa verið aðgengilegri en nú
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar