fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði í baráttu við SAS – Krafðist 6,5 milljóna en aðeins tæplega 400 þúsund áttu að renna til farþeganna

Ritstjórn DV
Mánudaginn 8. júní 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjaness hefur vísað kröfum gegn flugfélaginu Scandinavian Airlines System (SAS) frá í tveimur aðskildum málum. Bæði málin voru höfðuð af HF15 ehf. sem er félagið sem rekur vefsíðuna flugbaetur.is.

Fyrra málið varðaði flug sem íslenskur karlmaður átti bókað með flugfélaginu frá Kistiansund til Osló. Manninum var neitað um far vegna yfirbókunar þó að hann hefði mætt til innritunar á tilsettum tíma með staðfesta bókun og fullgild ferðaskírteini. Gerði maðurinn kröfu um staðlaðar skaðabætur og framseldi kröfuna til HF15 ehf.

HF15 sendi bréf til flugfélagsins í september á síðasta ári og gerði kröfu um 7.394 evrur, eða rétt rúma milljón. Af þessari fjárhæð voru 400 evrur í staðlaðar skaðabætur, 17 evrur í vexti og 6.972 evrur í málskostnað. Kröfunni var hafnað en flugfélagið sagðist þó tilbúið að sætta málið þannig að greiddar yrðu 400 evrur með vöxtum til mannsins og 70 þúsund krónur í málskostnað. Við þetta vildi HF15 ekki una og höfðaði mál eftir árangurslausar samningsviðræður.

Flugfélagið bar því við að því yrði ekki stefnt fyrir dóm á Íslandi í málum sem varða staðlaðar skaðabætur á grundvelli reglugerðar Evrópusambandsins. Varnarþing vegna slíkra mála geti aðeins verið á brottfarar- eða komustað þess flugs sem krafan byggist á. Dómari tók undir þetta og benti á að flugfélagið væri hvorki með lögheimili, aðalskrifstofu né útibú á Íslandi og ferðin sem um ræðir var á milli staða í Noregi. Var málinu því vísað frá.

Seinna málið varðaði flug sem íslenskur karlmaður átti bókað með flugfélaginu frá Stavanger til Kaupmannahafnar. Því flugi var aflýst en maðurinn vildi meina að ekki hefði verið tilkynnt um aflýsinguna með fullnægjandi fyrirvara. Fjárhæðir voru þær sömu og í fyrra málinu og eins og því fyrra var þessu máli vísað frá með vísan til þess að ekki væri hægt að höfða mál hér á landi gegn félagi sem ekki hefur útibú á Íslandi og vegna flugs sem varðaði ekki Ísland með nokkrum hætti.

Fram kemur í báðum málum að í heildina hafi HF15 ehf. krafið flugfélagið um bætur og málskostnað vegna sex farþega. Heildarkrafan var því 44.363 evrur eða um 6,5 milljónir og af þeim var málskostnaður 41.832 evrur eða um 6,16 milljónir. HF15 er í eigu lögmannsins Ómars R. Valdimarssonar sem einnig flutti bæði málin fyrir hönd félags síns. Fyrir þremur árum höfðaði Ómar mál fyrir hönd fimm skjólstæðinga á hendur finnska flugfélaginu Finnair vegna rúmlega fjögurra klukkustunda seinkunar á flugi frá Svíþjóð til Taílands í desember árið 2021. Finnair krafðist þá að Ómar þyrfti persónulega að greiða málarekstur í málinu enda væri málareksturinn með öllu tilhæfulaus. Fór svo að krafa flugfélagsins var ekki tekin til skoðunar þar sem dómari, líkt og nú, vísaði málinu frá.

Sjá einnig:Finnair fór fram á að Ómar Valdimars þyrfti sjálfur að greiða málskostnað fyrir tilhæfulausa málsókn

Fyrir tveimur árum var Ómar sakaður um að hafa blekkt neytendur með villandi og rangri upplýsingagjöf á vefsíðunni flugbaetur.is með því að áskilja sér rétt til að tilkynna ekki neytendum þjónustunnar um málshöfðun áður en mál er höfðað en þegar Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu hafði nokkuð verið fjallað um íslenskt par sem kom af fjöllum þegar það komst að því að Ómar hafði stefnt ítölsku flugfélagi án þess að bera það undir það. Þegar málið tapaðist sat parið uppi með málskostnað, en Vísir fjallað ítarlega um málið á sínum tíma.

Sjá einnig:Neytendastofa slær á fingur Esju Legal – Flugbætur.is veittu rangar og villandi upplýsingar og brutu gegn góðum viðskiptaháttum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segist hafa fengið áreiðanlegar upplýsingar um að Sindri sé í varðhaldi í Taílandi

Segist hafa fengið áreiðanlegar upplýsingar um að Sindri sé í varðhaldi í Taílandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fasteignasali segir fyrstu kaup sjaldan hafa verið aðgengilegri en nú

Fasteignasali segir fyrstu kaup sjaldan hafa verið aðgengilegri en nú
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar