Cristiano Ronaldo er einn af mörgum sem er mjög ósammála því að Lionel Messi hafi verið kjörinn besti knattspyrnumaður í heimi í ár. Mörgum þykja ummæli hans þó frekar ósmekkleg
Messi hreppti í gær Ballon d’Or verðlaunin eftirsóttu í áttunda skiptið
Líklega var þetta síðasta skiptið sem Messi fær þessi verðlaun en ólíklegt er að hann vinni fleiri núna þegar hann er leikmaður Inter Miami.
Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn en um er að ræða virtustu verðlaun fyrir knattspyrnufólk.
Ronaldo setur ummæli við færslu á Instagram þar sem rætt er um Messi og að hann hafi svo sannarlega ekki átt verðlaunin skilið.
Ronaldo setur inn tjákn þar sem hann hlær af þeirri staðreynd að Messi hafi unnið sinn áttunda Gullknött en í færslunni segir að það sé líklega þremur of mikið.