Tveimur leikjum er nýlokið í 14. umferð Pepsi Max-deildar karla.
Lennon með þrennu í sigri á ÍA
FH heimsótti ÍA og vann öruggan sigur.
Steven Lennon kom þeim yfir á 33. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Staðan í hálfleik var 0-1.
FH fékk aftur víti snemma í seinni hálfleik. Aftur skoraði Lennon.
Lennon innsiglaði svo þrennu sína og 0-3 sigur FH með marki á 57. mínútu. Hann skoraði þá eftir sendingu frá Baldri Loga Guðlaugssyni.
FH er komið upp í sjötta sæti deildarinnar. Liðið hefur 18 stig eftir þrettán leiki.
ÍA er á botninum með aðeins 9 stig eftir fjórtán leiki.
Mikilvægur sigur KA í Breiðholti
KA heimsótti Leikni Reykjavík og vann mikilvægan sigur.
Ásgeir Sigurgeirsson gerði eina mark leiksins á 13. mínútu með góðu skoti.
KA er í fjórða sæti deildarinnar með 23 stig eftir þrettán leiki. Liðið er 4 stigum á eftir toppliði Vals.
Leiknismenn eru í sjöunda sæti með 17 stig eftir fjórtán leiki.