433

Jón Guðni: Það var þungt yfir hópnum

Jón Guðni Fjóluson var súr á svip eftir leik gegn Andorra í undankeppni EM í kvöld.

Ísland vann 2-0 sigur á Andorra en á sama tíma gerðu Tyrkir og Frakkar jafntefli.

„Það var frekar þungt yfir hópnum þegar menn heyrðu að það væri 1-1 í París," sagði Jón.

„Þetta var spes leikur en þetta snýst um að vinna og klára þetta og við gerðum nóg.“

„Það komu smá kviður í seinni en ekkert til að kvarta yfir. Við náðum að klára þetta og það er nóg.“