Við Íslendingar töpuðum 1-0 gegn Frökkum í undankeppni EM í kvöld en leikið var á Laugardalsvelli.
Eina mark leiksins fyrir Frakka gerði Olivier Giroud úr vítaspyrnu og taka þeir þrjú stig með sér heim.
Tyrkir unnu á sama tíma dramatískan sigur á Albaníu þar sem eitt mark var skorað í Tyrklandi.
Cenk Tosun tryggði Tyrkjum sigur en hann gerði markið á lokamínútu leiksins sem er svekkjandi fyrir okkur.
Í hinum leik riðilsins áttust við Andorra og Moldóva en þar fékk Andorra sín fyrstu stig og vann óvæntan 1-0 heimasigur.
Úr öðrum leikjum kvöldsins er það að frétta að England tapaði 2-1 gegn Tékklandi sem kemur á óvart.
Tyrkland 1-0 Albanía
1-0 Cenk Tosun
Andorra 1-0 Moldóva
1-0 M. Vales
Tékkland 2-1 England
0-1 Harry Kane(víti)
1-1 Jakub Brabec
2-1 lukas Masopust