433

Útilokar brottför Pogba

Mynd

Patrice Evra, góðvinur Paul Pogba, segir að það séu engar líkur á því að hann sé á förum frá félaginu.

Pogba hefur verið orðaður við brottför frá Manchester United en hann ku vera ósáttur.

„Paul er einbeittur. Paul er í Manchester og hann verður þar áfram," sagði Evra.

„Það hafa viðræður verið í gangi en það er gott fyrir hann og gott fyrir félagið.“

„Nú verðum að einbeita okkur, við sjáum hvað gerist á næstu árum en nú væri erfitt fyrir hann að yfirgefa Manchester.“

„Að fara í lok gluggans þegar tímabilið er búið, nei. Ég vona að hann eigi frábært tímabil með United.“