433

Tvær stjörnur Bayern geta ekki spilað saman

Mynd

Niko Kovac, stjóri Bayern Munchen, ætlar ekki að spila tveimur stjörnum liðsins á sama tíma.

Leikmennirnir umtöluðu eru þeir Thomas Muller og Philippe Coutinho en sá síðarnefndi kom í sumar.

Það er því útlit fyrir það að annar þeirra þurfi að sætta sig við reglulega bekkjarsetu á tímabilinu.

„Muller og Coutinho saman í tíunni er of sóknarsinnað. Við þurfum meira jafnvægi,“ sagði Kovac.

„Aldrei segja aldrei en eins og staðan er þá er líkurnar ekki miklar.“