fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Fréttir

Dætur konunnar skammaðar fyrir að taka myndina: Morgunmatnum nánast „skellt ofan á klósettsetuna“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 22. nóvember 2018 14:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dætur 92 ára konu sem var látin sofa inni á  salerni á lyflækningadeild Landspítala síðustu nótt, voru skammaðar af starfsfólki spítalans fyrir að taka mynd af aðstöðunni og birta á Facebook. DV greindi frá því fyrr í dag að 92 ára gömul móðir Berglindar Sigurðardóttur hefði þurft að eyða nóttinni á klósetti með kúabjöllu til að fá aðstoð.

„Ég skildi við hana í gærkvöldi og þá var hún bara grátandi. Hún sagði: „Núna er þetta bara búið, ég á eftir að deyja hérna í nótt. Svo spurði hún hvort ráðherrarnir myndu láta bjóða sér þetta,“ segir Berglind í samtali við DV en hún birti meðfylgjandi mynd á Facebook í gærkvöldi  sem sýnir aðstæður móður hennar á spítalanum.

Sjá einnig: 92 ára konu komið fyrir á salerni á Landspítalanum

Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður Páls Matthíassonar forstjóra Landspítalans, harmaði málið í samtali við fjölmiðla í morgun. „Við hörmum að það þurfi að grípa til svona úrræða og gerum allt til að stytta tímann sem fólk býr við svona aðbúnað. Þetta er ekki þjónustan sem við viljum bjóða,“ sagði Anna Sigrún. Bætti hún við að þetta væri „birtingarmynd þess ástands sem við búum við vegna skorts á hjúkrunarrýmum.“

Berglind segir í samtali við Stundina að þær hafi fengið skammir vegna myndbirtingarinnar frá starfsfólki: „Við fengum skammir fyrir að vekja athygli á þessu í morgunmatnum í morgun, þegar komið var með hann og honum nánast skellt ofan á klósettsetuna,“ segir Berglind við Stundina. „Okkur var sagt að ekki væri leyfilegt að taka myndir af aðstöðunni. Við svöruðum því til að við gætum ekki annað, við hefðum bara fengum bara áfall þegar við sáum við hvaða aðstæður hún þurfti að búa. Við báðum um að henni yrði í það minnsta rúllað fram svo hún fengi nú að borða morgunmatinn sinn frammi á gangi frekar en inni á klósettinu.“

Búið er að koma móður Berglindar fyrir inni á sjúkrastofu. Berglind segir: „Það síðasta sem hún sagði við okkur í gærkvöldi, grátandi, var: „Skyldu ráðherrarnir láta bjóða sér þetta ef þeim yrði rúllað hér inn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Í gær

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð
Fréttir
Í gær

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Í gær

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári