fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

92 ára konu komið fyrir á salerni á Landspítalanum – Þarf að hringja kúabjöllu til að fá aðstoð: „Ég á eftir að deyja hérna í nótt“

Auður Ösp
Fimmtudaginn 22. nóvember 2018 10:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Okkur var sagt að þetta væri bara svona og það sé gert ráð fyrir einu plássi inni á klósetti þegar það eru ekki laus rúm annars staðar á deildinni. Þetta sé bara það sem er í boði. Þannig að það er ekki vitað hvenær hún fær rúm,“ segir Berglind Sigurðardóttir í samtali við DV en 92 ára gamalli móður hennar var í gærkvöldi  komið fyrir á salerni á öldrunardeild Landspítalans þar sem engin rúm voru laus annars staðar á deildinni. Þarf hún að hringja kúabjöllu til að fá aðstoð hjúkrunarfólks.

„Ég skildi við hana í gærkvöldi og þá var hún bara grátandi. Hún sagði: „Núna er þetta bara búið, ég á eftir að deyja hérna í nótt. Svo spurði hún hvort ráðherrarnir myndu láta bjóða sér þetta,“ segir Berglind í samtali við DV en hún birti meðfylgjandi mynd á facebook í gærkvöldi  sem sýnir aðstæður móður hennar á spítalanum.

Móðir Berglindar var lögð inn á bráðadeildina í Fossvogi fyrir rúmri viku þar sem hún datt og fékk slæma byltu.  Var hún að sögn Berglindar mjög rugluð og illa áttuð eftir höfuðhöggið, auk þess sem hún hafði mikla verki í baki. Á öðrum degi fékk hún pláss á lyflækningadeild þar sem hún náði sér og varð eins og hún á að sér að vera að sögn Berglindar.

Í gærkvöldi var fjölskyldunni hins vegar tjáð að flytja þyrfti móður Berglindar upp á öldrunardeild  þar sem annar sjúklingur þyrfti rúmið hennar.

„Þegar þangað kom var ekkert pláss fyrir hana þar og var hún því sett inn á salerni og verður þar næstu nætur eða þangað til rúm losnar. Á daginn fær hún að dúsa á ganginum því nota þarf salernið fyrir böðun og annað. Nú liggur hún, 92 ára, grátandi inni á klósetti með kúabjöllu  á borðinu til þess að gera vart við sig ef hana vantar aðstoð. Hún á ekki eftir að geta sofið í nótt því hún á allt eins von á því að aðrir sjúklingar þurfi að gera þarfir sínar þar sem hún liggur.“

Í samtali við blaðamann segist Berglind hafa farið aftur  á spítalann í morgun.

„Þá hefur þetta verið svo mikið áfall fyrir hana að hún er aftur dottin í fyrra ástand og bullar bara. Hún er illa áttuð og veit ekkert hvar hún er. Hún heldur til dæmis að pabbi sé á lífi ennþá, en hann dó fyrir fimmtán árum.“

Berglind bætir við að hjúkrunarfræðingarnir á lyflækningadeildinni séu yndislegar. „Þær vilja allt fyrir hana gera en þær fá ekkert um það ráðið hvort hún sé flutt á öldrunardeildina eða ekki.  Og núna er hún bara komin aftur á byrjunarreit.“

„Við hörmum að það þurfi að grípa til svona úrræða og gerum allt til að stytta tímann sem fólk býr við svona aðbúnað. Þetta er ekki þjónustan sem við viljum bjóða,“ segir Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður Páls Matthíassonar forstjóra Landspítalans í samtali við vef Vísi nú í morgun. Bætti hún við að þetta væri „birtingarmynd þess ástands sem við búum við vegna skorts á hjúkrunarrýmum.“

Hér fyrir neðan má lesa færslu Berglindar í heild sinni

Nú er ég sár og reið.
Mamma var lögð inn á bráðadeildina í Fossvogi fyrir rúmri viku þar sem hún datt og fékk slæma byltu.
Þar var hún í tvo daga á 10-15 manna stofu. Skýrslan úr sjúkrabílnum glataðist og hefur ekki ennþá fundist.

Fyrsta daginn voru nokkrir hjúkrunarfræðingar sem komu á vakt og alltaf var eins og upplýsingar bærust ekki á milli manna á vaktaskiptum eða þeir kynntu sér ekki hvað væri að sjúklingum í þeirra umsjá, bæði með lyf og ástand sjúklings.
Þeir skráðu niður þau lyf sem hún tekur og einnig að hún væri með sykursýki, en þær upplýsingar glötuðust á milli vakta, svo við þurftum að passa upp á að hún tæki lyfin sín og fengi ekki sykurfall. Hún var með næringu í æð og þegar pokinn kláraðist og slangan var orðin full af blóði, var okkur sagt að það væri ekki aðkallandi að setja annan poka, það væru aðrir sjúklingar veikari en hún!

Ef við hefðum ekki setið yfir henni þessa 2 daga þá væri hún eflaust ekki á lífi, því henni var ekkert sinnt nema maður kallaði eftir því.
Hún var í engu standi til þess að gefa nokkrar upplýsingar sjálf þar sem ástand hennar var þannig að hún var mjög rugluð og illa áttuð.

Hún fékk mikið höfuðhögg, bæði augu voru mikið blóðhlaupin. Hún hafði mikla verki í baki og höfðum við skiljanlega miklar áhyggjur af henni.
Ég bað ítrekað um að fá að ræða við lækni út af ástandi hennar. Ég beið í 7 klst. og loksins kl. 01:00 eftir miðnætti náði ég tali af honum, 16 klst. eftir að hún lagðist inn.

Á öðrum degi fékk hún pláss upp á lyflækningadeild þar sem hún er búin að vera í viku og hafa síðustu tveir dagar verið góðir og mamma loksins orðin eins og hún á að sér að vera. Má þar þakka yndislegu starfsfólki á deildinni sem hafa annast hana af mikilli nærgætni og alúð.

En í kvöld var okkur sagt að hún yrði flutt á aðra deild þar sem annar sjúklingur þyrfti rúmið hennar. Þegar þangað kom var ekkert pláss fyrir hana þar og var hún því sett inn á salerni og verður þar næstu nætur eða þangað til rúm losnar.
Á daginn fær hún að dúsa á ganginum því nota þarf salernið fyrir böðun og annað.
Nú liggur hún, 92 ára, grátandi inni á klósetti með KÚABJÖLLU á borðinu til þess að gera vart við sig ef hana vantar aðstoð.
Hún á ekki eftir að geta sofið í nótt því hún á allt eins von á því að aðrir sjúklingar þurfi að gera þarfir sínar þar sem hún liggur.
Við höfum áhyggjur af því að þetta áfall verði til þess að ástand hennar versni aftur því svona breyting á umhverfi getur orðið til þess.

Hvernig er hægt að gera fólki þetta?
Hvað ætli heilbrigðiseftirlitið segi við því að láta fólk sofa inni á mesta sýklabæli spítalans?
Ég veit að starfsfólkið er að gera sitt besta og er yndislegt upp til hópa en hver ákveður svona lagað?
Enn og aftur er þetta sönnun þess hversu mikið heilbrigðiskerfið okkar er í molum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu