fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Viðtalið við Evu Dís: „Ég má hafa þarfir, og uppfylla þær, og biðja aðra um að vera með mér í að gera lífið dásamlegt ef þeir vilja.“

Margrét Gústavsdóttir
Miðvikudaginn 30. maí 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

…Eva segir þetta vændishús hafa verið með hærri standarda en mörg önnur hvað varðaði vernd og þjónustu.

„Kúnnarnir fóru hins vegar oft yfir strikið. Þetta endaði með að ég flutti mig annað til að taka að mér BDSM-kúnna, bara svo ég gæti sloppið við að láta riðlast á mér. Ég veit samt ekki hvort það var eitthvað skárra því það brotnar eitthvað inni í manni þegar maður níðist á annarri manneskju. Þó hún sé að borga manni fyrir það. Ég fór líka í fylgdarþjónustu og mætti heim til kúnna. Allt í allt stóð ég í þessu í tæplega eitt ár og nú eru komin 13 ár síðan.“

Hvað varð til þess að þú hættir þessu?

„Ég tók aftur saman við Jim. Við ákváðum að flytja inn saman og reyna að hætta þessu rugli og eignast barn. Hann þjáðist í hvert sinn sem ég var með öðrum en honum. Honum fannst svo hræðilegt að ég væri að gera þetta. Ég veit ekki hvort hann hafi verið ástfanginn af mér en ég veit samt að honum þótti mjög vænt um mig. Þetta var líka ákveðin spurning um eignarhald.“

Sambúðin entist ekki lengi en áfram héldu þau samt að vera sundur og saman í alls sex ár, eða frá því hún var nýflutt út árið 2002 til ársins 2008 þegar hún kemur aftur heim til Íslands eftir erfitt fósturlát.

Hvað svo. Hvað gerist þegar þú kemur aftur heim eftir þessi sex ár í Kaupmannahöfn?

„Ég er í rauninni í „survival mode“, bara reyni að lifa af. Ég djammaði líka mikið og átti í mjög yfirborðskenndum samskiptum við fólk. Svo fékk ég vinnu hjá Heilsuhúsinu við afgreiðslustörf, varð fljótlega verslunarstjóri, byrjaði með strák og fór í sambúð. Við vorum í raun bæði manneskjur í miklum sársauka og við meiddum hvort annað. Við vorum saman sirka frá 2009 til 2011 og þá gerist það sem sagt að pabbi tekur líf sitt og líf mitt fór að snúast í rétta átt ef svo má að orði komast.“

Hvernig var sú atburðarás?

„Það er kannski ekki auðvelt að rekja það hvernig þetta byrjar en sirka 2005 keypti hann Stálsmiðjuna í félagi við tíu aðra. Svo fer hann auðvitað að drekka aftur. Þeir hringja í hann einn morguninn og boða hann í viðtal. Segja að þeir vilji ekki að hann mæti áfram nema hann fari fyrst í áfengismeðferð. Hann fór heim eftir þetta viðtal og skaut sig. Konan hans var líka búin að segja við hann að ef hann klúðraði vinnunni þá myndi hún yfirgefa hann og taka allt sem hann átti. Svo kom hún að honum inni í bílskúr þar sem hann var búinn að fyrirfara sér.“

„Ég var líka hrikalega reið manneskja á þessum tíma“

Evu bárust fréttirnar með þeim hætti að móðir hennar hringdi í hana og var mikið niðri fyrir. Sagði að þær yrðu að hittast því hún þyrfti að segja henni svolítið. Þarna var Eva stödd heima hjá sambýlismanninum sem hún var þá nýlega hætt með en var ennþá að hitta af og til.

„Mamma segist vilja keyra uppá Kjalarnes til bróður míns og hitta mig þar. Ég hélt að þetta snerist um ömmu sem var búin að vera veik og ég man að ég hugsaði:„Nú er kannski amma að deyja“. Ég fattaði ekki af hverju ég gæti ekki bara keyrt beint upp á spítala, af hverju það mætti ekki segja neitt í símann. Það fauk í mig. Ég var líka hrikalega reið manneskja á þessum tíma. Það þurfti mjög lítið til að gera mig reiða á þessum árum. Ég var stödd uppi í Mosó og sagðist geta hitt hana á bílastæðinu við N1 á leiðinni upp á Kjalarnes:„Fyrst þú endilega vilt!““

„Það var bara svona blæja yfir þar sem höfuðið á honum hafði verið“

Á bílastæðinu fær Eva þær fréttir að faðir hennar sé látinn.

„Ég meðtók þetta ekki. Varð ógeðslega reið og skildi ekkert hvaða helvítis kjaftæði þetta væri. Seinna sagði systir mín mér að augnaráð mitt hefði dugað til að drepa hana. Næstu viðbrögð mín voru að hringja í strákinn sem ég var þarna að hætta með og segja honum að pabbi minn sé dáinn. Hann bauðst til að keyra mig upp á Kjalarnes og þangað fórum við. Næstu dagar voru bara í móðu. Ég var svo reið út í konuna hans og ég varð líka hrikalega reið út í prestinn sem jarðaði hann, því sá vildi ekkert við mig tala. Þetta var allt bara hræðilegt. Í fyrsta lagi tók langan tíma fyrir okkur að fá líkið þar sem það voru einhver veikindi hjá starfsfólki spítalans, svo fengum smá við viðvörun með honum í kistunni. Það var bara svona blæja yfir þar sem höfuðið á honum hafði verið.“

Hótaði að hætta samskiptum ef hún ætlaði að halda áfram að vera reið

„Eins sárt og það var að missa pabba þá gerðist eitthvað svakalegt í kjölfarið og allt hófst það með yfirþyrmandi reiði. Ég einfaldlega brjálaðist út í tilveruna og konuna hans pabba. Mér fannst hún eiga sök á svo mörgu og ég óð bara yfir allt og alla í mínum sársauka. Svo kom að því að systir mín setti mér stólinn fyrir dyrnar og sagðist ekki geta verið í samskiptum við mig ef ég ætlaði að halda áfram að vera svona reið,“ segir Eva og bætir við að systir hennar sé dýrmætasta manneskjan í hennar lífi.

„Ég myndi gera allt fyrir hana svo við þetta fór ég að skoða hegðun mína, fortíðina, framkomu, tilfinningar og allt sem þessu fylgir. Mamma útvegaði mér samtalsmeðferð hjá presti og með því hófst mín sjálfsvinna.“

Lenti í bílslysi nokkrum mínútum eftir nauðgun

Þegar Eva er nýlega byrjuð í samtalsmeðferð hjá prestinum vísar læknir henni til meðferðaraðila sem átti að hjálpa henni með sýkingu sem hún fékk í tannholdið. Þar varð hún fyrir nauðgun en þetta var í byrjun desember 2011.

„Þegar ég kom út frá honum settist ég undir stýri og ók af stað í algjöru sjokki. Örfáum mínútum seinna lendi ég svo í hrikalegu bílslysi. Við það slitnuðu liðbönd á hægri ökkla og ég hlaut mikil meiðsli á hrygg, hálsi og öxlum. Þegar ég lít um öxl finnst mér eins og mér hafi verið kippt út úr lífinu til að ég gæti valið aðra braut en þá sem ég var komin á. Þarna missti ég vinnuna og neyddist til að fara í endurhæfingu á sál og líkama.“

„…mér fannst ég hreinlega vera að deyja“

Fyrstu skrefin hjá Evu voru að skoða meðvirkni í samskiptum og því næst fékk hún endurhæfingarstyrk frá Virk og fór í mjög reglubundna meðferð hjá sálfræðingi.

„Í janúar 2013 skrái ég mig svo í Ráðgjafarskóla Íslands en það var of mikið fyrir mig. Smátt og smátt byrjar mér að líða mjög illa, svo illa að mér fannst ég hreinlega vera að deyja. Eftir tvær innlagnir, rannsóknir og ferðir á göngudeild Landspítalans finna læknarnir svo æxli í kviðnum á mér. Sennilega var ég byrjuð að þróa krabbamein í brisi sem varð svo fyrir hnjaski í bílslysinu, sprakk út í kviðinn og byrjaði að vaxa inn í líffærin í kring.“

Lífið tók 90 gráðu viðsnúning

Í apríl 2013 leggst Eva á skurðarborðið. Læknarnir fjarlægðu meðal annars miltað úr hennni ásamt hluta af brisi, maga, ristli, þind og þörmum.

„Ég fór inn og út af Landspítalanum fram í júlí það ár með sýkingar sem þurfti að drena út og var gríðarlega veik. Samt má segja að bílslysið hafi bjargað mér frá því að þurfa að takast á við krabbameinið því læknarnir náðu að skera allt í burtu og ég þurfti ekki á krabbameinsmeðferð að halda.“

Samkvæmt ráðleggingum læknis þurfti Eva að taka sér hlé frá endurhæfingarprógraminu með Virk meðan hún var að jafna sig eftir aðgerðina.

Ég var samt alveg viðþolslaus að komast í að gera eitthvað og tók því feginsamlega þegar vinir mínir buðu mér með sér á samskiptanámskeið í Borgarfirði. Við það tók líf mitt 90 gráðu viðsnúning og síðan hefur öll mín tilvera snúist til betri vegar.

Lærði að bera ábyrgð á sjálfri sér

Námskeiðið sem um ræðir kallast Umhyggjurík samskipti eða Non Violent Communication og var upphaflega þróað af geðlækninum og sálfræðingnum Marshall Rosenberg:

„Hann hugsaði mikið um af hverju við bregðumst við eins og við gerum. Af hverju sumir bregðast við mótlæti af æðruleysi og samkennd á meðan aðrir reiðast og beita ofbeldi. Samskipti snúast í raun mikið um tilfinningalæsi og viðurkenningu og þarna lærði ég bæði að skilja sjálfa mig og annað fólk alveg upp á nýtt. Ég verð þessum vinum mínum sem buðu mér með sér þarna upp í Borgarfjörð ævinlega þakklát því þarna lærði ég að bera ábyrgð á sjálfri mér og leyfa öðrum að bera ábyrgð á sér. Ég skildi einnig að enginn getur gefið mér það sem ég get ekki gefið mér sjálf og að ég má hafa þarfir, og uppfylla þær, og biðja aðra um að vera með mér í að gera lífið dásamlegt ef þeir vilja.“

Umhyggjurík samskipti þau áhrifamestu

Nú eru liðin fimm ár frá því Eva Dís kynntist þessari leið sem meðal annars hefur verið notuð af Sameinuðu þjóðunum, hjá trúnaðarmönnum í fyrirtækjum á borð við Mercedez Benz og IBM, af kennurum og þjálfurum víða um heim og fangelsismálayfirvöldum í Bandaríkjunum svo fátt eitt sé nefnt.

Eva segir að af öllum þeim sjálfsbjargarleiðum sem hún hafi kynnt sér í þeirri viðleitni að ná sér af áföllum og afleiðingum ofbeldis og vændis séu Umhyggjuríku samskiptin þau allra áhrifamestu.

„Fyrir tveimur árum kom upp sú staða hjá mér að hluti magaveggjarins gaf sig eftir stóra skurðinn og ég tók mér hlé frá því að mennta mig frekar í Umhyggjuríkum samskiptum til að fara í aðgerð. Að henni lokinni fór ég svo í Stígamót til að reyna að greiða betur úr sálarlífinu og afleiðingum af kynferðisofbeldi og vændi sérstaklega. Þar bauðst mér að taka þátt í hópavinnu sem gerði kraftaverk fyrir mig. Frá áramótum hef ég svo sjálf starfað sem leiðbeinandi hjá Stígamótum og fyrir skemmstu gafst mér nýtt tækifæri til að kenna Umhyggjurík samskipti hjá Bjarkarhlíð, sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og er styrkt af Velferðarráðuneytinu.“

Að lokum biður þessi hugrakka kona um að fá að koma því á framfæri að eftir kosningar verði ný námskeið í Umhyggjuríkum samskiptum auglýst á Facebook síðu með sama nafni.

„Ég veit að ég á dökka fortíð að baki en það er mikilvægt fyrir mig að ég fái sjálf rými til að skilgreina hana. Mér finnst erfiðleikarnir og allt það sem ég hef gengið í gegn um hafa gert mig að bæði sterkri og víðsýnni manneskju. Mig langar að nota allt það sem hefur komið fyrir mig, bæði sjálfri mér og öðrum til góðs,“ segir Eva Dís að lokum.

Eva Dís mun halda námskeið í Umhyggjuríkum samskiptum þann 10 júní nk. Til að skrá sig á námskeiðið má hafa samband með því að senda henni tölvupóst á eva (hjá) 1 punktur is eða með því að smella HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar