

Það kemur í ljós næsta laugardag hvort Guðni Bergsson eða Geir Þorsteinsson muni sinna starfi formanns KSÍ næstu árin.
Guðni hefur undanfarin tvö ár sinnt því starfi en hann tók við af Geir sem steig til hliðar árið 2017.
Margir eru ánægðir með það starf sem Guðni hefur unnið en Geir er með aðrar hugmyndir og vill breyta til.
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir er á meðal þeirra sem vilja halda Guðna í sínu sæti.
Dagný talar vel um Guðna en hún var í landsliðinu í sjö ár á meðan Geir var formaður og þekkir til þeirra beggja.
Dagný segir að samskipti kvennalandsliðsins við Guðna hafi hingað til verið mun meiri og að Geir hafi verið upptekinn að öðru er hann var við stjórnvölin.
Hún var í landsliðinu fyrsta ár Guðna í starfi en ekki því seinna þar sem hún var ólétt.
Þau 8 ár sem èg spilaði með A-landsliði kvenna var Guðni í töluvert meiri samskiptum við kvennaliðið. Geir virtist of upptekinn fyrir eitthvað annað öll 7 árin á undan. Guðni líka góð manneskja, splæsti á ólèttu mig á Lemon þegar posarnir lágu niðri!?? #KSIformadur
— Dagný Brynjarsdóttir (@dagnybrynjars) 6 February 2019