fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Næringarfræðingar segja að þessar algengu matvörur skaði heilbrigði þitt hægt og rólega

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 10:30

Frosnar pítsur eru vinsælar en ekki góðar fyrir heilsuna. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matvæli, sem við neytum daglega, geta verið slæm fyrir heilsu okkar og þrír næringarfræðingar, sem ræddu við Fox News Digital, segja að margir séu ekki meðvitaðir um þetta. Þetta eru matvæli allt frá drykkjarföngum yfir í ósköp venjulegan mat.

Þeir nefndu nokkrar tegundir sem fólk þarf að gæta sín sérstaklega á að þeirra mati.

Tilbúnir frosnir réttir – Tilbúnir réttir eru fljótlegir og hentugir á annasömum dögum en þeim fylgja oft leyndar hættur fyrir heilsu okkar að sögn Alma Simmons, næringarfræðings við Ohio ríkisháskólann. Hún sagði að frosnir tilbúnir réttir innihaldi stundum rúmlega helming ráðlags dagsskammts af salti en það getur valdið háum blóðþrýstingi, vökvasöfnun og álagi á nýrun.

Hún benti á að margir af þessum réttum inniholdi einnig óholla fitu, mettaða og transfitu, rotvarnarefni og ýmis aukaefni sem hafa verið tengd við hjartasjúkdóma og bólgur. Þeir innihalda einnig  efni sem eru hugsanlega krabbameinsvaldandi.

Þegar réttirnir eru hitaðir upp losnar um efni sem trufla hormónastarfsemina. Julia Zumpano, næringarfræðingur hjá Cleveland Clinic, sagði að þessar máltíðir séu einnig oft svo næringarsnauðar að fólk geti lent í því að skorta nauðsynleg vítamín og steinefni.

Sykurlausir gosdrykkir – Dagleg neysla sykurlausra gosdrykkja getur skaðað þarmaflóruna að sögn Simmons. Hún sagði að sætuefni á borð við aspartam geti haft áhrif á örverurnar í þörmunum og næmi líkamans fyrir insúlíni. Hún benti á að enn sé margt óljóst í þessum efnum og vísindamenn ræði þetta enn.

Hún benti einnig á að sykurlausir gosdrykkir séu ekki mikið skárri fyrir tennurnar en sykraðir vegna sýruinnihaldsins.

Zumpano sagði að sykurlausir gosdrykkir geti valdið hærra blóðsykurmagni og jafnvel valdið þyngdaraukningu. „Þeir geta truflað þarmaflórunnar og aukið löngunina í sætindi og kolvetni sem gera fólki erfiðara fyrir við að léttast,“ sagði hún.

Nasl – Mikið magn salts, óholl fita og hitaeiningar gera nasl að slæmum valkosti sagði Lauren Manaker, næringarfræðingur fá Suður-Karólínu. „Að borða nasl daglega getur orsakað of háan blóðþrýsting og dregið úr mettunartilfinningunni, sem eykur líkurnar á ofáti,“ sagði hún.

Hún ráðleggur fólki að borða frekar poppkorn eða ristaðar kjúklingabaunir.

Sætt kaffi – Það getur virst góð hugmynd að byrja daginn á að fá sér sætt kaffi en það er nú ekki það besta fyrir heilsuna. Of mikill sykur í kaffinu getur valdið því að blóðsykurmagnið hækkar og lækkar hratt og það veldur þreytu síðar.

Það er því betra að drekka ósætt kaffi í byrjun dags og geyma sætu útgáfurnar þar til við sérstök tilefni.

Áfengi – Fyrir marga er áfengi það sem þeir eiga erfiðast með að hætta að drekka. Dagleg áfengisneysla getur farið illa með lifrina, valdið svefntruflunum og aukið hættuna á of háum blóðþrýstingi og ákveðnum tegundum krabbameins.

Það er því best að neyta áfengis í miklu hófi og alls ekki oft í viku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Í gær

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið