fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Pressan

Eftir drápið á leiðtoga Írans – Pútín er hræddur

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 12:30

Pútín situr fastur í Úkraínu. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vladímír Pútín fylgist vel með því sem gerist í heiminum og að undanförnu hafa sjónir hans beinst að Íran og stríðinu þar. Það fór ekki fram hjá honum þegar Bandaríkjamenn drápu Ali Khameni, æðstaklerk. Er drápið sagt hafa farið illa í Pútín sem vill fyrir alla muni forðast sömu örlög.

Þetta segir Julia Loffe, rússneskur verðlaunablaðamaður, í grein hjá Puck.

Ali Khameni og fleiri íranskir leiðtogar voru drepnir á fyrsta degi stríðsins. Eftir drápin kom í ljós að ísraelska leyniþjónustan hafði til dæmis hakkað sig inn í umferðarmyndavélar og hafði þannig getað fylgst náið með ferðum stjórnarherranna.

Loffe segir að þetta hafi ekki farið fram hjá Pútín og sé hann mjög hræddur eftir þessa þróun mála. Hann heldur sig því fjarri Kreml og situr aðeins fjarfundi. Búið er að fjarlægja allt, sem tengist því að koma opinberlega fram, af dagskrá hans vegna ótta hans við að verða drepinn.

Loffe segir að Pútín hafi látið loka farsímakerfum í Moskvu að undanförnu því hann óttast að erlend öfl geti notað það til njósna. En lokun farsímakerfanna kemur að vonum mjög illa við rússneskan almenning og vekur óánægju hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Norðurlöndin þjappa sér saman í loftinu

Norðurlöndin þjappa sér saman í loftinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki